Enski boltinn

Rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það er rottuvandamál á Old Trafford sem lýsir því meðal annars að rottur eru farnar að hlaupa um á grasinu þrátt fyrir að það sé leikur í gangi á sama tíma.
Það er rottuvandamál á Old Trafford sem lýsir því meðal annars að rottur eru farnar að hlaupa um á grasinu þrátt fyrir að það sé leikur í gangi á sama tíma. Getty/James Gill/Vishal Bhatnagar

Það er ekki aðeins leikmannahópur og lið Manchester United sem þarf nauðsynlega á endurnýjun að halda.

Allir í og kringum Manchester United kalla eftir nýjum eða endurbættum leikvangi og nýjustu fréttir af Old Trafford sýna mikilvægi þess enn á ný.

Við höfum séð myndbönd af því þegar þakið á leikvanginum lekur sem og af hrörlegum aðstæðum á vellinum sem er kominn til ára sinna. Nú virðist meindýravandmál einnig vera til vandræða í Leikhúsi draumanna.

Áhorfandi á leik Manchester United og Southampton á dögunum náði því á myndband þegar rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik.

United kom til baka í leiknum og skoraði þrjú mörk á síðustu tíu mínútunum eftir að hafa lent undir.

Ella Glaesener tók upp myndbandið og grínaðist með það að rottan hafi verið tólfti maðurinn hjá Manchester United í leiknum.

Hér fyrir neðan má sjá myndbandið af rottunni sem var svo spök að voga sér inn á grasið þegar leikurinn var í gangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×