Innlent

Strætó fær sérakrein á Kringlu­mýrar­braut

Árni Sæberg skrifar
Strætisvagnar munu stoppa á Kringlumýrarbraut eftir breytingarnar.
Strætisvagnar munu stoppa á Kringlumýrarbraut eftir breytingarnar. Vísir/Vilhelm

Uppbygging forgangsakreinar fyrir strætisvagna á Kringlumýrarbraut er í undirbúningi á um fimm hundruð metra kafla á milli Háaleitisbrautar og Miklubrautar. Umferð fjölskyldubílsins þarf ekki að víkja fyrir akreininni heldur verður miðeyja minnkuð.

Í tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar segir að kaflinn sem um ræðir sé vestanmegin á götunni, með akstursstefnu í suður. Einnig sé gert ráð fyrir nýjum strætóstöðvum nálægt gatnamótunum við Háaleitisbraut. Vegagerðin, Betri samgöngur, Reykjavíkurborg og Strætó vinni saman að þessu verkefni.

Forhönnun hafi verið kynnt í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar í gærmorgun og samþykkt hafi verið að halda áfram undirbúningi við verkið.

Sparar fimm mínútur

Markmiðið með uppbyggingu forgangsakreinar á Kringlumýrarbraut sé að stytta ferðatíma um allt að fjórar til fimm mínútur fyrir strætófarþega, sem eru til dæmis á leið frá Borgartúni. Með nýrri forgangsakrein komist Strætó greiðar leiðar sinnar óháð annarri umferð og leiðin sé beinni. Framkvæmdirnar hafi ekki áhrif á akreinar fyrir almenna bílaumferð heldur verði miðeyja minnkuð.

Hér má sjá kaflann sem um ræðir.Reykjavíkurborg

Eins og staðan er fari Strætó ekki þarna um núna af því að umferðin sé of hæg á annatímum og engar biðstöðvar Strætó séu á þessum slóðum. Í dag aki strætisvagnar upp Miklubraut, fram hjá Kringlu og svo vestur eftir Háaleitisbraut og beygi síðan norður Kringlumýrarbraut.

Boðið út fyrir vorið

Loks segir í tilkynningu að unnið hafi verið að greiningu á umferðarástandi, veitulögnum og samspili við aðrar framkvæmdir á þessum vegkafla. Vinna við verkhönnun og útboðsgögn sé framundan en vonast sé til að hægt verði að bjóða út fyrsta hluta framkvæmda út fyrir vorið og hefja svo framkvæmdir á strætórein í suðurátt í framhaldinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×