Fótbolti

Vill ekki halda á­fram eftir komu Freys

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Freyr Alexandersson vildi halda hinum fertuga Erik Huseklepp en Huseklepp er á förum frá Brann.
Freyr Alexandersson vildi halda hinum fertuga Erik Huseklepp en Huseklepp er á förum frá Brann. @sportsklubbenbrann

Freyr Alexandersson er tekinn við sem þjálfari Brann en hann hefur nú misst öflugan aðstoðarþjálfara frá félaginu.

Erik Huseklepp hefur tekið þá ákvörðun að hætta hjá norska úrvalsdeildarfélaginu eftir þriggja ára farsælt starf. Brann staðfestir fréttirnar á heimasíðu sinni.

Þegar Freyr tók við liðinu þá talaði hann um það að hann vildi halda Huseklepp.

„Ég hef verið að velta þessu fyrir mér undanfarna daga. Hlutirnir eru nú að þróast í aðra átt en áður. Það er því best fyrir mig, Brann og þjálfarateymið að þeir haldi áfram án mín. Ég er rosalega ánægður með Brann og óska þeim alls hins besta,“ sagði Erik Huseklepp í viðtali á heimasíðu Brann.

„Þetta hefur verið algjörlega frábær tími og ég verð alltaf þakklátur fyrir að hafa fengið að taka þátt í þessu ferðalagi. Ég kveð þennan hóp leikmanna dapur í bragði af því að þeir eru að leggja meira á sig en ég hef séð áður. Þeir eru samheldnir, skila mikilli vinnu og það hefur verið heiður fyrir mig að vinna með þeim og restinni af starfsliðinu,“ sagði Huseklepp.

Huseklepp talaði um framtíð sína þegar Freyr var búinn að vera þar í tvo daga. Þar sagðist hann vera að íhuga framtíð sína.

„Bæði félagið og Freyr höfum talað hreint út um það að við vildum hafa Erik áfram sem hluta af þessu þjálfarateymi. Því miður hefur hann ákveðið að hætta þrátt fyrir að við höfum boðið honum að halda sinni stöðu,“ sagði Per-Ove Ludvigsen, íþróttastjóri Brann.

Freyr kom með aðstoðarþjálfarann Jonathan Hartmann með sér en þeir hafa unnið saman hjá bæði Kortrijk í Belgíu og Lyngby í Danmörku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×