Innlent

Rann­saka hvort dauðs­fall megi rekja til falsaðs Xanax

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Mynd úr safni. 
Mynd úr safni.  Vísir/Egill Aðalsteinsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar dauðsfall þar sem grunur leikur á að inntaka á fölsuðum Xanax-pillum hafi leitt til andlátsins.

Í tilkynningu frá embættinu er varað við hættulegum efnum í umferð em Xamax er vinsælt lyfseðilsskylt lyf í Bandaríkjunum og er notað við kvíða.

Virka efnið í Xanax er Alprazolam en hinar fölsuðu pillur innihalda í raun efnið Flualprazolam. Lögreglan segir að til rannsóknar sé dauðsfall hér á landi þar sem grunur leikur á að inntaka á lyfinu hafi leitt til andlátsins. Þær fölsuðu Xanax pillur sem lögreglan hefur lagt hald á hér á landi eru gular að lit.

Þá segir að einnig hafi nýlega verið lagt hald á MDMA (ecstasy) töflur á leið til landsins en við rannsókn á töflunum hafi komið í ljós að þær innihéldu tvöfalt meira magn MDMA en meðaltalsstyrkur haldlagðra efna hefur verið hér á landi. Töflurnar séu kallaðar "Punisher" og rauðbleikar á litinn.

Lögregla hefur einnig upplýsingar um að sambærilegar bláar MDMA töflur séu seldar hérlendis en þær kunna að vera enn sterkari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×