Innherji

Íbúða­verð gefur eftir sam­tímis háum raun­vöxtum og stífum lána­skil­yrðum

Hörður Ægisson skrifar
Mjög hefur dregið úr verðhækkunum á fasteignamarkaði að undanförnu og merki um að hann fari kólnandi. 
Mjög hefur dregið úr verðhækkunum á fasteignamarkaði að undanförnu og merki um að hann fari kólnandi.  Vísir/Vilhelm

Fasteignamarkaðurinn er heilt yfir nokkuð kaldur um þessar mundir, sem birtist meðal annars í fækkun kaupsamninga og íbúðaverð staðið nánast í stað síðustu mánuði, og útlit er fyrir að raunverð geti gefið eftir á fyrri hluta ársins samtímis háum raunvöxtum og þröngum lánþegaskilyrðum, að mati hagfræðinga Arion. Á sama tíma og mjög hefur dregið úr verðhækkunum á fasteignamarkaði hefur framboð á íbúðum til sölu aukist talsvert, drifið áfram af fjölgun nýbygginga, og ekki verið meira um langt skeið.


Tengdar fréttir

Út­lit fyrir óbreyttan verðbólgu­takt í að­draganda næstu vaxtaákvörðunar

Fæstir hagfræðingar eiga von á því að verðbólgan muni hjaðna milli mánaða þegar mælingin fyrir janúar verður birt eftir tvær vikur, nokkrum dögum áður en peningastefnunefnd kemur saman, en miðað við meðalspá sex greinenda er útlit fyrir að tólf mánaða takturinn haldist óbreyttur annan mánuðinn í röð. Gangi bráðabirgðaspár eftir ætti verðbólgan hins vegar að taka nokkra dýfu í framhaldinu og vera komin undir fjögurra prósenta vikmörk verðbólgumarkmiðs Seðlabankans strax í marsmánuði.

Raun­vextir Seðla­bankans orðnir hærri en þeir mældust við síðustu vaxtalækkun

Eftir skarpa lækkun á verðbólguvæntingum fyrirtækja og heimila stóðu raunstýrivextir, eins og Seðlabankinn metur þá, í hæstu hæðum í lok síðasta árs og eru þeir núna lítillega hærri en þegar peningastefnunefnd ákvað að lækka vexti um fimmtíu punkta á fundi sínum í nóvember. Að óbreyttu ætti sú þróun að auka líkur á stórri vaxtalækkun í febrúar en á sama tíma hefur undirliggjandi verðbólga haldið áfram að lækka og mælist nú ekki minni, að sögn Seðlabankans, síðan í árslok 2021.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×