Lífið

Selur tvær í­búðir í fal­legu húsi í mið­bænum

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Íbúðirnar eru í fallegu lyftuhúsi á besta stað í miðborg Reykjavíkur.
Íbúðirnar eru í fallegu lyftuhúsi á besta stað í miðborg Reykjavíkur.

Thor holding, félag í eigu Bergþórs Baldvinssonar framkvæmdastjóra Nesfisks, hefur auglýst tvær eignir í sama húsi í miðborg Reykjavíkur til sölu. Mögulegt er að sameina íbúðirnar í eina stærri eign sem telur 196 fermetra samtals.

Íbúðirnar eru í fallegu lyftu húsi við Tryggagötu 16 sem var byggt árið 1936. Tveir inngangur eru í húsið, frá jarðhæð við Tryggvagötu og frá annarri hæð við Vesturgötu. 

New York Loft -stíll

Fyrri eignin er 92 fermetrar að stærð og hönnuð í svo kölluðum New York Loft - stíl. 

Alrýmið er opið með mikilli lofthæð og veglegum burðarsúlum sem setja mikinn karakter á rýmið. Stór spegill með stál römmum stelur senunni í stofunni og stækkar rýmið í senn. Í eldhúsinu má sjá fallega súkkulaðibrúna viðarinnrétting, sem nær yfir allan vegginn, með steinplötu á borðum.

Í íbúðinni er eitt svefnherbergi og eitt baðherbergi. Ásett verð er 79,9 milljónir.

Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.

Ljósir litatónar og viðarloft

Seinni Íbúðin er stærri, eða um 104 fermetrar að stærð, og skiptist í stofu, borðstofu, eldhús,  tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi með baðkari og sturtu, og þvottahús. 

Alrýmið er rúmgott og er með fallegu útsýni yfir Reykjavíkurhöfn. Í eldhúsinu er nýleg innrétting í brúngráum lit með stein á borðum. Ásett verð er 88, 5 milljónir.

Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.