Sport

Taylor Swift í­hugaði að skipta um nafn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Taylor Swift ætlar nú að nýta sér nafnið til að koma sér áfram í íþróttinni.
Taylor Swift ætlar nú að nýta sér nafnið til að koma sér áfram í íþróttinni. @taylorswiftmma

Nafnið Taylor Swift kemur ekki bara við sögu í tónlistaheiminum eða í kringum NFL-deildina því íþróttamaður með sama nafn er nú að reyna að koma sér áfram í breskum bardagaíþróttum.

Tónlistarkonan Taylor Swift er ein frægasta kona heims og það eru eflaust fáir í vestrænum heimi sem vita ekki hver hún er.

Það er einmitt nafnið Taylor Swift sem fékk 21 árs gamlan breskan bardagamann til að íhuga það að skipta um nafn. Hann ber sama nafn og hin vinsæla tónlistarkona.

„Fólk fór meira að segja að hlæja þegar ég var vigtaður fyrir keppni. Fólk spyr mig líka hvort mér sé alvara þegar ég segi þeim nafnið mitt,“ sagði Taylor.

„Það er líka hlegið þegar ég fer í gegnum vopnaleit á flugvöllum eða inn um dyr á skemmtistöðum,“ sagði Taylor.

Hann hætti samt við að skipta um nafn og ætlar frekar að reyna að nýta sér nafnið til að koma sér áfram í bardagaheiminum. Það hlýtur að vera áhugi á því að sjá Taylor Swift slást í búrinu.

„Stór hluti af íþróttinni snýst um samfélagsmiðla og að sölumennsku. Ég ætla að eyna að nýta mér þetta,“ sagði Taylor.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×