Viðskipti innlent

Breytingar hjá Arctic Adventures með nýju skipu­riti

Atli Ísleifsson skrifar
Ásgeir Baldurs er forstjóri Arctic Adventures.
Ásgeir Baldurs er forstjóri Arctic Adventures. Aðsend

Nokkrar breytingar hafa orðið í stjórnendahópi Arctic Adventures þar sem nýtt skipurit var kynnt í upphafi árs.

Frá þessi segir í tilkynningu. Þar kemur fram að Birkir Björnsson, sem gegnt hafi starfi framkvæmdastjóra upplýsingatækni og stafrænnar sölu, taki við sem framkvæmdastjóri viðskiptasviðs. Hann muni leiða sölu- og markaðsmál Arctic Adventures auk upplýsingatækni.

„Birta Ísólfsdóttir tekur við nýju sviði og verður framkvæmdastjóri áfangastaða. Hún mun sjá um uppbyggingu og rekstur áfangastaða svo sem Kersins, Fjaðrárgljúfurs, Óbyggðasetursins og annarra áfangastaða í rekstri Arctic Adventures og dótturfélaga.. Birta mun auk þess leiða sjálfbærni- og menningarmál. Birta var áður framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs.

Byron Conroy verður áfram framkvæmdastjóri rekstrarsviðs. Undir rekstrarsvið heyrir rekstur og framkvæmd ferða, ævintýraferðir og hótelstarfsemi Arctic Adventures.

Inga Miskine verður framkvæmdastjóri þjónustu en hún hefur síðustu ár stýrt þjónustuveri og skrifstofu félagsins í Litháen.

Ásta María Marinósdóttir er framkvæmdastjóri Special Tours sem Arctic keypti síðasta sumar. Special Tours verður áfram rekið sem sjálfstætt dótturfélag Arctic Adventures.

Teitur Þór Ingvarsson er framkvæmdastjóri fjármála hjá Arctic Adventures.

Ásgeir Baldurs er forstjóri Arctic Adventures.

Auk þessara breytinga á framkvæmdastjórn koma tveir einstaklingar inn í stjórnendahóp Arctic Adventures. Lina Zygele mun taka við sem markaðsstjóri Arctic Adventures og Þóra Matthildur Þórðardóttir mun taka við sem sölustjóri fyrirtækjasviðs Arctic Adventures samhliða núverandi starfi sínu sem sölu- og markaðsstjóri Special Tours,“ segir í tilkynningunni.

Ennfremur segir að skipuritið endurspegli vöxt á síðustu árum með kaupum á öðrum fyrirtækjum í ferðaþjónustu og byggi á nýrri stefnumótun sem sé ætlað að auka skilvirkni og efla félagið til framtíðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×