Lífið

Gunnar selur þak­í­búð í „New York Loft-stíl“

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Íbúðin er á besta stað í miðbæ Reykjavík í sjarmerandi húsi þar sem bogadregnir gluggar og aukin lofthæð er í aðalhlutverki.
Íbúðin er á besta stað í miðbæ Reykjavík í sjarmerandi húsi þar sem bogadregnir gluggar og aukin lofthæð er í aðalhlutverki.

Gunnar Hólmsteinn Guðmundsson, framkvæmdastjóri og meðstofnendi hugbúnaðarfyrirtækisins Quest Portal, hefur sett fallega íbúð við Grettisgötu 5 í miðbæ Reykjavíkur á sölu. Ásett verð er 124, 9 milljónir.

Um er að ræða nýuppgerða 176 fermetra þakíbúð í húsi sem var byggt árið 1983. Eignin er í svokölluðum New York Loft - stíl þar sem gróft viðarparket á gólfi kallast á við fallega múrsteinsveggi, mikla lofthæð og stóra formfagra glugga. 

Eldhús, stofa og borðstofa renna saman í opnu og björtu rými, þaðan  er útgengt á rúmgóðar svalir með útsýni yfir borgina. 

Í eldhúsinu er svartar sprautulakkaðar innréttingar með góðu skápaplássi og eyju. Á borðum eru steyptar borðplötur sem gefa rýminu einstakan karakter og hrátt yfirbragð.

Úr alrýminu er gengið inn á svefnherbergisgang þar sem þakgluggi nær yfir allan ganginn sem hleypir dagsbirtu inn.

Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.


Tengdar fréttir

Kröfur upp á 87 milljónir í þrotabú Teatime

Skiptum á búi fyrirtækisins Teatime ehf. var lokið þann 22. mars síðastliðinn en kröfur í þrotabúið námu samtals tæpum 87 milljónum króna. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu.

Teymið að baki QuizUp gefur út nýjan spurningaleik

Íslenska tæknifyrirtækið Teatime, sem var stofnað af frumkvöðlunum sem stóðu að Plain Vanilla, sem gaf út spurningaleikinn QuizUp, hefur gefið út sinn fyrsta spurningaleik frá því að QuizUp fór sigurför um heiminn. Nýi leikurinn ber heitið Trivia Royale og er í formi smáforrits.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.