Fótbolti

Karó­lína skoraði stór­kost­legt mark og lagði annað upp

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir gegnir stóru hlutverki í liði Leverkusen sem berst um þýska meistaratitilinn.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir gegnir stóru hlutverki í liði Leverkusen sem berst um þýska meistaratitilinn. Getty/Inaki Esnaola

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir skoraði glæsilegt mark fyrir Bayer Leverkusen og lagði upp annað í 3-2 tapi á útivelli gegn Eintracht Frankfurt í toppslag þýsku úrvalsdeildarinnar.

Markmaðurinn Stina Johannes lagði markið í raun upp, hún gaf langa sendingu upp völlinn sem Karólína tók við, og skaut svo af óralöngu færi og skoraði. Markið er með glæsilegra móti og má sjá hér fyrir neðan.

Mark Karólínu var 1-1 jöfnunarmark eftir Frankfurt tók forystuna af vítapunktinum.

Frankfurt komst aftur yfir aðeins tveimur mínútum síðar. Leverkusen jafnaði svo í 2-2 í upphafi seinni hálfleiks, Katharina Piljíc skoraði markið eftir hornspyrnu og stoðsendingu frá Karólínu.

En aftur, aðeins tveimur mínútum síðar, tókst Frankfurt að taka forystuna á ný. Leverkusen átti ekki annað jöfnunarmark og lokatölur urðu 3-2.

Um var að ræða toppslag, liðin tvö ásamt Bayern Munchen voru jöfn með 29 stig fyrir leik. Frankfurt fer því í efsta sætið eftir sigurinn, með þriggja stiga forystu en Bayern á leik á sunnudaginn gegn Leipzig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×