Ótímabundin verkföll í öllum leikskólum Kópavogs Árni Sæberg skrifar 14. febrúar 2025 16:27 Verkföll hafa verið boðuð í öllum leikskólum Kópavogs. Vísir Félag leikskólakennara boðar ótímabundin verkföll í öllum leikskólum Kópavogs. Félag grunnskólakennara boðar verkföll í grunnskólum í þremur sveitarfélögum; Akraneskaupstað, Hveragerðisbæ og Ölfusi.
Í tilkynningu á vef Kennarasambands Íslands segir að félagsfólk Félags leikskólakennara, FL, sem starfar hjá Kópavogsbæ hafi samþykkt verkfallsboðun frá 3. mars næstkomandi. Leikskólar í Kópavogi séu 22 talsins. Verkföllin verði ótímabundin. Eftir helgi hefjist einnig atkvæðagreiðslur um ótímabundin verkföll í öllum leikskólum Hafnarfjarðar og Fjarðabyggðar. Félagsfólk í Félagi grunnskólakennara, FG, og Skólastjórafélagi Íslands, SÍ, sem starfar hjá sveitarfélögunum Ölfusi, Hveragerðisbæ og Akraneskaupstað, hafi jafnframt samþykkt verkfallsboðun frá 3. mars næstkomandi. Einn grunnskóli sé í Ölfusi, einn í Hveragerðisbæ og tveir í Akraneskaupstað. Verkfallsboðun nái einnig til félagsfólks sem starfar á skólaskrifstofum sveitarfélaganna. Verkföll grunnskólafélaganna verði tímabundin og standi til og með 21. mars 2025. Félagsfólk FG, FL og SÍ, sem starfar í fyrrgreindum sveitarfélögum, hafi samþykkt verkfallsboðun með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða. Kjörsókn hafi í öllum tilfellum verið góð, á bilinu 60 til 100 prósent. Atkvæðagreiðsla hafi staðið dagana 13. og 14. febrúar.
Kópavogur Kennaraverkfall 2024-25 Leikskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Sjá meira