Linda segir að unnendur crème brûlée ættu ekki að verða fyrir vonbrigðum með þessa uppskrift: „Crème brûlée-ið er silkimjúkt og bragðgott, og toppurinn á bollunum er þakinn stökkum bræddum sykri sem brotnar og bráðnar í munninum þegar maður tekur bita.“
Créme brulée vatnsdeigsbollur
Créme brulée fylling
650 ml mjólk
5 eggjarauður
80 g sykur
5 msk kornsterkja (maizena mjöl)
1 tsk vanilludropar
Aðferð:
Hitið mjólk í stórum potti að suðu.
Setjið egg, sykur og kornsterkju í hrærivélaskál og þeytið þar til samlagað. Hellið helmingnum af heitri mjólkinni út í eggjablönduna í mjórri bunu með hrærivélina í gangi. Hellið svo eggja+mjólkurblöndunni aftur ofan í pottinn og hitið rólega á sama tíma og þið hrærið stanslaust í pottinum þar til blandan verður þykk og dekkri á litinn. Þetta getur tekið allt að 5 mín.
Hellið blöndunni í ílát og geymið inn í ísskáp þar til orðið kallt, allt að 2 klst. Ekki hafa áhyggjur ef blandan er smá kekkjótt, smellið henni bara í gegnum sigti.
Útbúið vatnsdeigsbollurnar á meðan.
Vatnsdeigsbollur
125 g smjör/smjörlíki
1 msk sykur
275 ml vatn
170 g hveiti
1 tsk lyftiduft
½ tsk salt
3-4 egg
Aðferð:
Kveikið á ofninum og stilltið á 180°C og blástur.
Smjör, sykur og vatn er sett í pott og soðið saman í 2-3 mín. Slökkvið svo undir pottinum.
Hveiti, lyftiduft og salt er sett í skál, bættu því út í smjör-vatnið og hrærðu vel saman með sleif.
Deigið á að vera þétt og lyftast upp frá brúnum pottsins.
Látið standa í 5 mínútúr áður en deigið er sett í hrærivél.
Setjið þrjú egg út í deigið, eitt íi einu og hrærið vel saman við. Þar sem að egg eru misstór er mismunandi hversu mikið þú þarft af síðiasta egginu.
Áferðin á deiginu á að vera þannig að það lekur hægt og svolítið erfiðlega af sleifinni á nokkrum sekúndum.
Deigið á að halda nokkurveginn sömu lögun eftir að þú setur það á plötuna, ekki leka út og verða flatt.
Setjið seinasta eggið í litla skál og hrærið. Byrjið á því að setja 1 msk af egginu í einu út í deigið og hrærið vel á milli þar til þú ert komin með rétta áferð.
Setjið deigið í sprautupoka eða notaðu matskeiðar til að útbúa bollurnar. Ein bolla eru tvær msk.
Setjið smjörpappír á ofnplötu og gættu þess að hafa gott pláss á milli hverrar bollu þar sem þær stækka mikið í ofninum. Gott er að miða við að setja tólf bollur á hverja plötu.
Bakið bollurnar í 20-25 mínútur en ekki opna ofninn fyrr en 20 mínútur eru liðnar. Þá er hægt að taka eina út og meta hversu margar mínútur bollurnar eiga eftir, en þú sérð það þegar þú opnar bolluna og hversu blaut hún er innan í.
Sykurtoppur
200 g sykur
60 ml vatn
1/8 tsk salt
Aðferð:
Setjið sykur, vatn og salt í pott, hitið á meðal hita þar til sykkurkornin hafa bráðnað og blandan orðin ljós gyllt, slökkvið þá undir pottinum.
Stingið hverja bollu með kjötgaffli inn í hliðina og dýfið bollunni ofan í sykurinn þannig að toppurinn á bollunni hjúpist.
Leggið bolluna á smjörpappír aftur.
Passið að snerta ekki sykurinn og látið hann ekki leka á ykkur því hann er svakalega heitur.
Látið sykurinn harðna.
Samsetning
Setjið créme brulée fyllinguna í sprautupoka.
Stingið sprautupokanum inn í bollurnar á hliðinni þar sem bollurnar voru stungnar með kjötgafflinum og fyllið.