Einn sá allra besti á Íslandi samdi við sænsku meistarana Sindri Sverrisson skrifar 3. mars 2025 10:00 Birgir Steinn Jónsson í búningi Sävehof en hann heimsótti félagið í síðasta mánuði. IK Sävehof Handboltamaðurinn Birgir Steinn Jónsson hefur skrifað undir samning við sænsku meistarana í Sävehof sem gildir til þriggja ára. Hann heldur til félagsins í sumar, eftir að leiktíðinni með Aftureldingu lýkur.
Birgir Steinn, sem er 26 ára, fór og skoðaði sig um hjá Sävehof í síðasta mánuði og náði í framhaldi samkomulagi við félagið um samning. Fyrir er einn Íslendingur í liði Sävehof en það er Selfyssingurinn Tryggvi Þórisson. Birgir Steinn hefur verið einn allra besti leikmaður Olís-deildarinnar síðustu ár. Hann kom til Aftureldingar frá Gróttu sumarið 2023 en er uppalinn Stjörnumaður. Hann hefur átt flestar stoðsendingar allra í deildinni í vetur, eða að meðaltali fimm í leik, og er í fjórða sæti yfir flest skoruð mörk með að meðaltali sjö mörk í leik. Hann hefur því komið með beinum hætti að 12 mörkum að meðaltali í leik í vetur. Afturelding er í 4. sæti Olís-deildarinnar, aðeins tveimur stigum frá toppnum nú þegar fjórar umferðir eru eftir fram að úrslitakeppninni sem Birgir Steinn mun taka fullan þátt í. Hann skoraði níu mörk þegar liðið féll út í undanúrslitum Powerade-bikarsins í síðustu viku með tapi gegn Fram. „Við erum virkilega ánægð með að fá Birgi til Sävehof. Hann mun styrkja okkar lið bæði varnarlega og sóknarlega. Leikskilningur hans og hæfileikar bæði til að skora og leggja upp mörk munu nýtast okkur ákaflega vel,“ sagði Jonathan Stenbäcken, yfirmaður íþróttamála hjá Sävehof.
Sænski handboltinn Olís-deild karla Afturelding Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Íslenski boltinn Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti Víkingur Götu - Stjarnan | Garðbæingar í góðum málum Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Fleiri fréttir Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Sjá meira