Lýsir ofríki og andlegu ofbeldi Gunnars Smára Magnús Jochum Pálsson skrifar 12. mars 2025 14:51 Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins, hefur boðað til skyndifundar vegna ásakana Karls Héðins Kristjánssonar, formann Ungra sósíalista, um andlegt ofbeldi. Vísir/Vilhelm/Arnar Forseti ungra Sósíalista hefur sagt sig úr kosningastjórn Sósíalistaflokksins í mótmælaskyni. Hann segist útskúfaður fyrir að segja sannleikann um „ofríki, andlegt ofbeldi og trúnaðarbrot“ Gunnars Smára Egilssonar, formanns framkvæmdastjórnar flokksins. Gunnar Smári hefur boðað til skyndifundar í kvöld vegna ásakananna.
Karl Héðinn Kristjánsson, sem sat í 2. sæti á lista Sósíalistaflokksins í Reykjavík suður í síðustu Alþingiskosningum og er forseti ungra Sósíalista, birtir yfirlýsingu um þetta mál í Facebook-færslu upp úr 13. „Ég hef tekið þá erfiðu en óhjákvæmilegu ákvörðun að segja af mér úr kosningastjórn Sósíalistaflokksins í mótmælaskyni eftir sameiginlegan fund stjórna síðastliðinn laugardag,“ segir Karl í færslunni. Ástæðan sé einföld. „Ég get ekki lengur starfað innan forystu sem hunsar lýðræðislega gagnrýni, viðheldur óheilbrigðri menningu og refsar þeim sem benda á vandamálin,“ segir hann. Segist útskúfaður fyrir að segja sannleikann Hann hafi í mörg ár unnið af heilindum að því að byggja upp sterkan, lýðræðislegan og grasrótardrifinn flokk. Hann segist í staðinn hafa upplifað útskúfun fyrir að segja sannleikann um „ofríki, andlegt ofbeldi og trúnaðarbrot“ formanns framkvæmdastjórnar, Gunnars Smára Egilssonar. Þeir sem verji Gunnar sama hvað á dynji hafi tekið þátt í þeirri útskúfun, jafnvel á meðan „þeir segjast styðja þolendur og berjast gegn ofbeldi,“ segir Karl. Hann segist ekki einn um þessa upplifun og viti því miður um „þó nokkur dæmi þar sem öflugir félagar fælast frá starfi vegna sambærilegra upplifanna“. „Lítill valdakjarni“ hunsað vinnu grasrótarinnar Ástæðuna fyrir endanlegri ákvörðun Karls virðist mega rekja til vinnuhelgar Sósíalistaflokksins þar sem félagsmenn og frambjóðendur úr öllum kjördæmum komu saman til að gera upp kosningabaráttuna. Þar hafi verið unnin frábær vinna og kalla Karl eftir því að fundargerð og skýrsla verði gerðar opinberar á vefsíðu flokksins. Mikil samhljómur hafi verið um þrennt. Í fyrsta lagi að auka gagnsæi og lýðræði í flokknum með reglulegum félagsfundum, í öðru lagi að valdefla landsbyggðina með stofnun svæðisfélaga og kjördæmisráða og í þriðja lagi að endurskoða nýtingu fjármuna flokksins svo „þeir renni í raunverulega uppbyggingu flokksstarfsins, en ekki í verkefni utan lýðræðislegs eftirlits félagsmanna.“ Frekar en að vinna upp úr niðurstöðu vinnuhelgarinnar segir Karl að „lítill valdakjarni innan framkvæmdastjórnar“ hafi ákveðið að hunsa hana og boða til sameiginlegs fundar stjórna um niðurstöðu netkönnunar. Hún hafi verið túlkuð var þannig að „allt væri í lagi.“ „Gagnrýni var afskrifuð sem fáfræði og niðurrifsstarfsemi, og enn á ný var reynt að þagga niður í þeim sem vilja bæta flokkinn undir formerkjum þess að þeir sem gagnrýni séu fáfróðir eða hreinlega illa innrættir,“ segir Karl. Að hunsa vinnu virkrar grasrótar, stjórnarmanna og frambjóðenda úr Alþingiskosningunum á þennan máta segir Karl að séu ömurleg vinnubrögð. Enn fremur segir Karl að Gunnar Smári hafi sniðgengið vinnuhelgina þrátt fyrir að vera formaður framkvæmdastjórnar og oddviti flokksins í Reykjavík norður í síðustu kosningum. Þess í stað hafi hann „haldið áfram að úthýsa gagnrýnisröddum og gaslýsa þá sem kalla eftir eðlilegri endurskoðun á störfum hans,“ segir Karl. Alþýðufélagið sé einkafélag Gunnars Smára Þá segir hann að Alþýðufélagið og Vorstjarnan fá samanlagt nær öll framlög Sósíalistaflokksins þrátt yfrir að hvorugt þeirra starfi eftir opnum og lýðræðislegum reglum. Vorstjarnan er samkvæmt síðu Sósíalistaflokksins styrktarsjóður sem styður hin verr settu í að byggja upp og reka hagsmunabaráttu sína. „Alþýðufélagið, sem á og rekur Samstöðina, er í raun einkafélag Gunnars Smára. Stjórn þess er sýndarstjórn, engir félagsfundir eru haldnir, og engin leið er fyrir almenna félagsmenn að hafa áhrif á starfsemi þess,“ segir Karl. Hann greinir frá því að hann hafi lagt sig allan fram við að byggja upp Samstöðina. Hann hafi unnið óteljandi klukkutíma í sjálfboðaliðavinnu og geri enn að töluverðu leyti. Hann hafi byggt upp stúdíóið, sinnt fréttaskrifum, dagskrárgerð og tæknimálum. Iðulega hafi hann unnið tíu tíma á dag og oft um helgar. „Þrátt fyrir það neitaði Gunnar Smári að greiða mér umsamin (og mjög lág) laun síðla sumars 2023 með þeim rökum að ég væri ekki að skila af mér þremur fréttum á dag. Ég hætti í kjölfar þess og reyndi að bjóða mig fram í stjórn Alþýðufélagsins en var einfaldlega bannað það. Það eru óásættanleg vinnubrögð innan sósíalískrar fjöldahreyfingar,“ segir í færslunni. Loks segist Karl ekki vera að gefast upp á hreyfingunni, hann muni áfram vinna með ungliðadeildinni og að skipulagi félagsstarfs fram að aðalfundi. Þar muni hann og fleiri félagar beitar sér fyrir breytingum á flokksstarfinu. Boðað til skyndifundar Um klukkutíma eftir yfirlýsingu Karls Héðins birti Gunnar Smári færslu á Rauða þræðinum, umræðuhópi Sósíalistaflokksins, þar sem hann boðaði til opins skyndifundar með formanni framkvæmdastjórnar í tilefni af ásökunum Karls. Fundurinn verður haldinn klukkan 18 í kvöld í félagsheimili Vorstjörnunnar í Bolholti 6 og er öllum opinn. Gunnar segist þar munu fara yfir opið bréf Karls, ræða þau atriði þess sem snúi að honum og greina frá starfi flokksins á undanförnum misserum. „Þau sem vilja kynna sér málin í kjölfar lestrar bréfs Karls eru hvött til að mæta,“ segir Gunnar.
Sósíalistaflokkurinn Mest lesið „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Innlent Segir nýtt að konan sé tekin á beinið Innlent Fimmtán ára piltur ók undan lögreglu um allt höfuðborgarsvæðið Innlent Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Innlent „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Innlent Óttast að lítið þurfi til svo bíllinn springi í loft upp Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Karl Wernersson ákærður fyrir að leyna verðmætum listaverkum fyrir skiptastjóra Innlent Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli Erlent Fleiri fréttir Lögreglan á Austurlandi tók þátt í stórri alþjóðlegri lögregluaðgerð Lýsa martraðakenndri leigubílaferð upp í Bláfjöll Daði ekki í stöðu til að meta hvaða fundir eru mikilvægari en aðrir Eyjamenn eigi Heimaklett og engin innistæða fyrir kröfum ríkisins Óttast að lítið þurfi til svo bíllinn springi í loft upp Ógnaði ungmennum með hníf Karl Wernersson ákærður fyrir að leyna verðmætum listaverkum fyrir skiptastjóra Martraðakennd leigubílaferð og óvelkomin sána Þorbjörg um sérstakan saksóknara: „Gerum þennan tíma upp“ Hrærður yfir áhuga stjórnarandstöðunnar en hafði annað að gera Fær um 90 milljónir fyrir verkið sem hópur Eyjamanna vill ekki sjá Fimmtán ára piltur ók undan lögreglu um allt höfuðborgarsvæðið Reyna enn einu sinni að ræða framtíð MÍR á aðalfundi Leggja til róttækar breytingar á byggingaeftirliti Á von á veiðigjaldamálinu í sína nefnd og þingstörfum fram í júlí Segir nýtt að konan sé tekin á beinið „Ofgnótt af vannýttum stæðum“ Veiðigjöldin afgreidd í nefnd og njósnarar buðu Sjóvá þjónustu sína Bein útsending: Aðgerðir til að bregðast við rakaskemmdum og öðrum byggingagöllum Mikil hætta meðan maður reyndi að flýja lögreglu í miðbænum „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Langflestir telja stríð og átök það sem helst þjakar heiminn „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni Sjá meira