Á meðal annarra sem stigu á stokk var Rebekka Blöndal, harðkjarnahljómsveitin Múr, Sif Margrét Tulinius, Kaktus Einarsson, Bríet og Nýdönsk. Tónlistarmaðurinn og skemmtikrafturinn Friðrik Ómar Hjörleifsson fór svo á kostum sem veislustjóri kvöldsins.
Það var útgefandinn Steinar Berg Ísleifsson sem hlaut Heiðursverðlaun íslensku tónlistarverðlaunanna í ár en afrekaskrá hans er æði löng og á hann stórkostlegan feril að baki. Í tilkynningu frá aðstandendum segir að nánast megi fullyrða að að baki flestra kjölfestuverka í sögu íslenskrar dægurtónlistar í gegnum árin standi Steinar Berg. Loks var það hljómsveitin Múr, sem farið hefur með himinskautum upp á síðkastið, sem útnefnd var Bjartasta vonin í íslensku tónlistarlífi.
Hér má sjá öll þau sem hlutu Íslensku tónlistarverðlaunin 2025 í kvöld:
Flytjendur ársins
Djasstónlist - Óskar Guðjónsson
Önnur tónlist - Magnús Jóhann Ragnarsson
Popp, rokk, hipphopp og raftónlist - Una Torfa
Sígild og samtímatónlist - Víkingur Heiðar Ólafsson
Tónlistarmyndband ársins
1000 orð - stuttmynd - Erlendur Sveinsson
Texti ársins
Óperan hundrað þúsund - Kristín Eíríksdóttir
Upptökustjórn ársins
Bára Gísladóttir: Orchestral Works - Ragnheiður Jónsdóttir, Daniel Shores
Vinsælasta tónlist ársins í samvinnu við Rúv og Rás 2
Laufey Lín
Söngur ársins
Sígild og samtímatónlist - Ólafur Kjartan Sigurðarson
Djasstónlist - Marína Ósk Þórólfsdóttir
Popp, rokk, hipphopp og raftónlist - Magni Ásgeirsson
Lög og tónverk ársins
Hipphopp og raftónlist - Monní - Aron Can
Önnur tónlist - Mona Lisa - Markéta Irglová
Djasstónlist - Visan - Ingi Bjarni
Rokktónlist - Í Draumalandinu - Spacestation
Sígild og samtímatónlist - Konsert nr. 2 fyrir hljómsveit - Snorri Sigfús Birgisson
Lag ársins - Popptónlist - Fullkomið farartæki - Nýdönsk
Plötur ársins
Kvikmynda- og leikhústónlist - Innocence - Snorri Hallgrímsson
Djasstónlist - Öræfi - Kjartan Valdemarsson, Stórsveit Reykjavíkur
Hipphopp og raftónlist - 1000 orð - Bríet og Birnir
Önnur tónlist - Wandering Beings - Guðmundur Pétursson
Rokktónlist - allt sem hefur gerst - Supersport!
Sígild og samtímatónlist - De Lumine - Sif Margrét Tulinius
Popptónlist - Miss Flower - Emiliana Torrini
Tónlistargrafík ársins
Lobster Coda - Shrey Kathuria, Hildur Erna Villiblóm