Innherji

Kaupin í Sýn gætu verið „öfug leið“ að skráningu verslunar­fé­laga í eigu SKEL

Hörður Ægisson skrifar
Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður SKEL, en fjárfestingafélagið er núna orðið þriðji stærsti hluthafi Sýnar með yfir tíu prósenta hlut.
Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður SKEL, en fjárfestingafélagið er núna orðið þriðji stærsti hluthafi Sýnar með yfir tíu prósenta hlut. Vísir/Vilhelm

Markmiðið með kaupum SKEL á ríflega tíu prósenta hlut í Sýn gæti verið undanfari þess að vilja láta reyna á samrunaviðræður við Samkaup/Heimkaup og þannig fara öfuga leið að boðaðri skráningu verslunarsamsteypunnar á hlutabréfamarkað, að mati hlutabréfagreinanda. Kaupin hjá SKEL voru gerð aðeins örfáum dögum fyrir aðalfund Sýnar en sennilegt er talið að stjórnendur fjárfestingafélagsins muni fara fram á að boðað verði til nýs hluthafafundar í því skyni að tilnefna fulltrúa sinn í stjórn fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtækisins.


Tengdar fréttir

Stjórn SKEL boðar sex milljarða arð­greiðslu til hlut­hafa

Fjárfestingafélagið SKEL, sem fer með meirihluta í Styrkás, hefur ákveðið að bjóða um tíu til fimmtán prósenta eignarhlut í innviðafyrirtækinu til sölu en stefnt er að skráningu þess innan tveggja ára. Þá boðar stjórn SKEL arðgreiðslu til hluthafa – í tveimur jöfnum greiðslum – upp á sex milljarða, nánast allur hagnaður síðasta árs, en það er sambærileg fjárhæð og hefur verið greidd út samanlagt til hluthafa frá árinu 2018.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×