Fyrirliða Forest bætt við enska hópinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. mars 2025 17:03 Morgan Gibbs-White og félögum í Nottingham Forest hefur gengið allt í haginn í vetur. ap/Rui Vieira Morgan Gibbs-White, fyrirliði Nottingham Forest, hefur verið kallaður inn í enska landsliðið í fótbolta.
Gibbs-White var ekki í enska hópnum sem Thomas Tuchel tilkynnti á föstudaginn. Honum var hins vegar bætt í hópinn vegna meiðsla Coles Palmer, leikmanns Chelsea. Gibbs-White hefur leikið vel fyrir Forest sem hefur komið öllum á óvart í vetur. Liðið er í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar og komið í átta liða úrslit bikarkeppninnar. England mætir Albaníu á föstudaginn og Lettlandi á mánudaginn eftir viku í fyrstu leikjum sínum í undankeppni HM 2026. Þetta eru jafnframt fyrstu leikir enska liðsins undir stjórn Tuchels. Hinn 25 ára Gibbs-White hefur leikið tvo A-landsleiki fyrir England, báða á síðasta ári. Þá lék hann fjölda leikja fyrir yngri landsliðin á sínum tíma. Gibbs-White lagði upp eitt marka Forest í 2-4 útisigri á Ipswich Town á laugardaginn. Í vetur hefur hann skorað fimm mörk og gefið sjö stoðsendingar í 25 leikjum í ensku úrvalsdeildinni.
Enski boltinn HM 2026 í fótbolta Tengdar fréttir Meiðslin muni að öllum líkindum teygja sig inn í landsleikjapásuna Cole Palmer, leikmaður Chelsea, mun að öllum líkindum missa af leikjum enska landsliðsins í komandi landsleikjaglugga. 16. mars 2025 22:47 Mest lesið Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Fótbolti Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Fótbolti Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Íslenski boltinn McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn „Ég er svo lélegur í golfi“ Golf Myndavélin hreyfðist ekki og því engin snerting Fótbolti Langar að taka pásu frá landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Sjá meira
Meiðslin muni að öllum líkindum teygja sig inn í landsleikjapásuna Cole Palmer, leikmaður Chelsea, mun að öllum líkindum missa af leikjum enska landsliðsins í komandi landsleikjaglugga. 16. mars 2025 22:47