Svona var fjögurra rétta matseðillinn Atli Ísleifsson skrifar 9. apríl 2025 07:56 Björn Skúlason, Halla Tómasdóttir og Haraldur fimmti í hátíðarkvöldverðinum í norsku konungshöllinni í gærkvöldi. Skrifstofa forseta Íslands/Myriam Marti og FS Foto Lagt var á borð fyrir 196 manns í hátíðarkvöldverði til heiðurs Hollu Tómasdóttur, forseta Íslands, í norsku konungshöllinni í gærkvöldi.
Þriggja daga ríkisheimsókn forsetahjónanna til Noregs hófst í gær, en með í för eru meðal annars Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, auk fulltrúa úr opinberri sendinefnd og viðskiptasendinefnd. Gestgjafar forsetahjóna í Noregi eru Haraldur V. konungur og Sonja drottning ásamt Hákoni krónprins og Mette-Marit krónprinsessu. Að auki tekur elsta dóttir þeirra, Ingiríður Alexandra prinsessa, þátt í sinni fyrstu ríkisheimsókn. Haraldur V Noregskonungur og Halla fluttu bæði ræðu í hátíðarkvöldverðinum þar sem mikið var um dýrðir. Athygli vakti að Halla þurfti að gera hlé á ræðu sinni þegar hún varð vör við veikindi eins gestsins, en hann ku þó vera við góða heilsu nú. Á heimasíðu norsku konungsfjölskyldunnar hefur verið birtur matseðill hátíðarkvöldverðarins og leit hann út á þessa leið: Aspas Bjarnarlauksmajónes, síldarhrogn, súrsaður rauðlaukur Flatkökur með Afrodite-osti *** Hörpudiskur Agúrka Papríkuflögur *** Andabringa Kartöflupúrré, broccolini Grillað grasker, piparsósa *** Hvítt sukkulaði Hindber og bergamía Skrifstofa forseta Íslands/Myriam Marti og FS Foto Annar dagur hefst á heimsókn í Innovation Norway Á vef forseta Íslands segir að dagskrá dagsins í dag hefjist í höfuðstöðvum Innovation Norway, systursamtaka Íslandsstofu, þar sem efnt verði til norsk-íslensks viðskiptaþings um sameiginlega hagsmuni þjóðanna í grænni umbreytingu. „Þaðan halda forsetahjón í Fontenehuset þar sem borgarstjóri Óslóar segir gestunum frá endurhæfingarstarfi fyrir fólk sem glímir við geðraskanir. Að því loknu eiga forseti og utanríkisráðherra fund með Jonas Gahr Støre forsætisráðherra og snæða svo hádegisverð í boði ríkisstjórnar Noregs. Sjónum beint að bókmenntaarfinum Síðdegis á miðvikudag fer fram menningarviðburður í Óslóarháskóla þar sem sjónum verður beint að bókmenntaarfi þjóðanna. Skáldin og rithöfundarnir Gerður Kristný, Knut Ødegård og Mette Karlsvik taka þar þátt í umræðum sem Halldór Guðmundsson rithöfundur stýrir. Um kvöldið býður forseti Íslands til móttöku til heiðurs Haraldi konungi og Sonju drottningu. Þar reiðir íslenska kokkalandsliðið fram veitingar, Ari Eldjárn fer með gamanmál og Benjamín Gísli Einarsson tónskáld leikur á píanó. Skrifstofa forseta Íslands/Myriam Marti og FS Foto Niðarósdómkirkja heimsótt Á þriðja degi heimsóknarinnar fylgir Hákon krónprins forsetahjónum og opinberri sendinefnd til Þrándheims, ásamt Tore O. Sandvik, varnarmálaráðherra Noregs. Á dagskránni í Þrándheimi er viðskiptaviðburður um bláa hagkerfið þar sem forseti og Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, flytja ávörp. Síðar um daginn heimsækja forsetahjón heimavarnardeild norska hersins í Værnes þar sem þau kynna sér þjálfunar- og endurhæfingarverkefni sem Norðmenn bjóða fyrir úkraínska hermenn. Forsetahjón heimsækja einnig Niðarósdómkirkju sem á rætur djúpt í sameiginlegri sögu Íslands og Noregs. Ríkisheimsókninni lýkur í Þrándheimi síðdegis 10. apríl og koma forsetahjón aftur til Íslands á fimmtudagskvöld,“ segir í tilkynningunni.
Halla Tómasdóttir Forseti Íslands Matur Kóngafólk Noregur Haraldur V Noregskonungur Mest lesið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Frank Beard er látinn 77 ára að aldri Lífið Fleiri fréttir Frank Beard er látinn 77 ára að aldri „Ég vildi verða þrítug í Pucci“ Sannkallað stjörnubrúðkaup Katrínar Tönju og Brooks Tekjuhæstu listamennirnir árið 2025 Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Sjá meira