Haraldur V Noregskonungur

Drottningin lögð inn vegna veikinda
Sonja Noregsdrottning var lögð inn á spítala í Osló seint í gær vegna öndunarerfiðleika. Drottningin var útskrifuð af spítalanum í morgun og verður í veikindaleyfi út vikuna.

Ákvað fyrir löngu að fara með ræðuna á íslensku
„Við höfum fengið alveg dásamlega fallegar móttökur hérna í Noregi. Ég held að Norðmenn líti á okkur sem sína nánustu frændþjóð og taka á móti okkur sem slíkri,“ segir Halla Tómasdóttir forseti Íslands um ríkisheimsókn forsetahjónanna til Noregs.

Svona var fjögurra rétta matseðillinn
Lagt var á borð fyrir 196 manns í hátíðarkvöldverði til heiðurs Hollu Tómasdóttur, forseta Íslands, í norsku konungshöllinni í gærkvöldi.

Halla gerði hlé vegna veikinda veislugests
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, þurfti að gera hlé á ræðu sinni við hátíðarkvöldverð sem er hluti af opinberri heimsókn forsetans til Noregs. Það mun hafa verið vegna veikinda eins veislugests.

Tímamót í opinberri heimsókn Höllu til Noregs
Það voru tímamót í morgun þegar þrjár kynslóðir norsku konungsfjölskyldunnar tóku á móti Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, og Birni Skúlasyni, eiginmanni hennar, við konungshöllina í miðborg Oslóar. Þar sinnti Ingiríður prinsessa sínu fyrsta opinbera embættisverki í ríkisheimsókn.

Forsetahjónin á leið til Noregs
Forsetahjónin auk tveggja ráðherra fara á morgun til Noregs í þriggja daga ríkisheimsók. Þar munu þau meðal annars heimsækja norska Stórþingið, háskóla og viðskiptaviðburð.

Á leið til Noregs og Svíþjóðar
Halla Tómasdóttir forseti hefur þegið boð um ríkisheimsóknir til Noregs og Svíþjóðar í vor. Markmið beggja heimsókna er að styrkja enn frekar söguleg tengsl þjóðanna og vinna að sameiginlegum hagsmunum.

Dregur úr vinnu og verkefnum
Haraldur V. Noregskonungur sneri aftur til vinnu í morgun eftir að hafa verið fjarverandi síðastliðnar átta vikur vegna heilsubrests. Norska konungshöllin greinir frá því að konungurinn muni draga nokkuð úr verkefnum sínum enda orðinn gamall.

Fær græddan í sig gangráð í dag
Haraldur Noregskonungur mun gangast undir aðgerð í dag þar sem hann mun fá græddan í sig gangráð.

Noregskonungur fær gangráð
Haraldur Noregskonungur mun fá græddan í sig varanlegan gangráð þar sem hjartsláttur hans þykir of hægur.

Haraldur konungur lagður inn á sjúkrahús
Haraldur Noregskonungur hefur verið lagður inn á Ríkissjúkrahúsið í Osló vegna sýkingar og þarf hann að gangast undir meðferð vegna þessa.

Haraldur Noregskonungur lagður inn á sjúkrahús
Haraldur Noregskonungur hefur verið lagður inn á Ríkissjúkrahúsið í Osló.

Marta Lovísa hættir að koma fram í nafni konungsfjölskyldunnar
Marta Lovísa Noregsprinsessa mun ekki koma fram opinberlega í nafni norsku konungsfjölskyldunnar framar.

Forsetahjónin fögnuðu með Margréti Þórhildi
Í dag fagnaði Margrét Þórhildur Danadrottning fimmtíu ára valdaafmæli sínu. Hún bauð þjóðhöfðingjum Norðurlandanna til veislu og forsetahjónin íslensku létu sig ekki vanta.

Marta Lovísa prinsessa og Durek Verrett trúlofuð
Norska prinsessan Marta Lovísa og bandaríski seiðmaðurinn Durek Verrett eru trúlofuð.

Norsku konungshjónin heimsækja Ask á morgun
Haraldur Noregskonungur og Sonja drottning munu sækja bæinn Ask heim á morgun og ræða við fólk sem missti allt sitt í hamförunum.

Norsku konungshjónin í sóttkví eftir að starfsmaður greindist með Covid
Haraldur Noregskonungur og Sonja drottning eru komin í sóttkví eftir að starfsmaður hirðarinnar greindist smitaður af kórónuveirunni.

Hjartaaðgerð Noregskonungs gekk vel
Hjartaaðgerð sem Haraldur Noregskonungur gekkst undir í morgun gekk vel. Þetta kemur fram í tilkynningu frá norsku konungshöllinni.

Noregskonungur þarf að gangast undir hjartaaðgerð
Haraldur Noregskonungur hefur verið lagður inn á sjúkrahús og er gert ráð fyrir að hann gangist undir hjartaaðgerð á morgun.

Noregskonungur aftur mættur til vinnu eftir veikindi
Haraldur Noregskonungur er aftur mættur til vinnu eftir að hafa dvalið á sjúkrahúsi síðustu daga vegna veikinda.

Haraldur Noregskonungur útskrifaður af sjúkrahúsi en áfram í veikindaleyfi
Vegna veikindanna gat konungurinn ekki tekið þátt í opnunarathöfn olíusvæðis í Norðursjó í síðustu viku, né gat hann verið viðstaddur fyrsta leik Noregs í Evrópukeppninni í handbolta.

Noregskonungur áfram á sjúkrahúsi
Haraldur Noregskonungur verður áfram á sjúkrahúsi í Osló að minnsta kosti fram yfir helgi. Í tilkynningu hirðarinnar í fyrradag hafði verið vonast til að konungur yrði útskrifaður í dag.

Útför Ara Behn gerð frá dómkirkjunni í Osló
Norski rithöfundurinn Ari Behn, fyrrverandi tengdasonur Noregskonungs, er jarðsunginn í dag en hann svipti sig lífi á jóladag.

Reyndi að fá Ara Behn til að breyta lokaorðum bókarinnar
Útgefandi Ara Behns, rithöfundar og fyrrverandi eiginmanns Mörtu Lovísu Noregsprinsessu sem lést um jólin, segist hafa reynt að fá Behn til að breyta lokaorðum bókar hans sem kom út í fyrra.

Fyrrverandi tengdasonur Noregskonungs látinn
Rithöfundurinn og fyrrverandi eiginmaður Mörtu Lovísu Noregsprinsessu, Ari Behn, er látinn, 47 ára að aldri.

Nýr kærasti Noregsprinsessu segir foreldra hennar elska sig
Norska konungsfjölskyldan hefur kosið að tjá sig ekki um nýjan tengdason.

Fyrrverandi eiginmaður Noregsprinsessu segir Spacey hafa káfað á kynfærum sínum í Nóbelsveislu
Fyrrverandi eiginmaður Mörtu Lovísu segir að Kevin Spacey hafi káfað á kynfærum sínum þegar þeir hittust veislu í tengslum við afhendingu Friðarverðlauna Nóbels fyrir tíu árum.

Tilkynnt um andlát Noregskonungs fyrir mistök
Norska fréttastofan Norsk Telegrambyrå (NTB) sendi fyrir mistök fréttaskeyti á alla helstu fjölmiðla Noregs þess efnis að Haraldur Noregskonungur væri látinn. Þremur mínútum seinna var fréttaskeytið dregið til baka.

Norskur prins „dab-aði“ á svölum hallarinnar í áttræðisafmæli konungs og drottningar
Sverrir Magnús hvatti systur og frændsystkini sín að fylgjast með sér áður en hann tók snögga dab-hreyfingu á svölum konungshallarinnar í Ósló.

Bergsveinn sleginn til riddara í Noregi
Bergsveinn Birgisson, rithöfundur og doktor í norrænum fræðum, var heiðraður af Noregskonungi á dögunum.