KR tók á móti ÍA og bauð upp á fimm marka flengingu í fjórðu umferð Bestu deildar karla. 5-0 niðurstaðan í Laugardalnum og KR enn ósigrað. ÍA hefur hins vegar tapað síðustu þremur leikjum. Fyrirliðinn Aron Sigurðarson sneri aftur úr leikbanni, skoraði tvö mörk og lagði upp eitt. Atli Sigurjónsson kom inn af varamannabekknum og lagði upp síðustu tvö mörkin.
Eins og má nú búast við, þegar KR er annars vegar, var leikurinn í meira lagi fjörugur alveg frá fyrstu mínútu.
„Heimamenn“ hér í Laugardalnum byrjuðu hins vegar illa. Tóku langan tíma í að fóta sig og töpuðu boltanum oft á eigin vallarhelmingi, sem leiddi til fjölda tækifæra fyrir ÍA.
Átta mínútur milli marka
Á 24. mínútu tók Aron Sigurðarson hins vegar frábæran sprett og afgreiddi færið í nærhornið með vinstri fæti til að taka forystuna fyrir KR.
Við það lifnaði yfir öllu hjá KR og skömmu síðar, á 32. mínútu skoruðu þeir annað mark. Luke Rae stalst þá inn í þversendingu sem Haukur Andri gaf, brunaði upp völlinn af ógnarhraða og kom boltanum í netið.


Það þriðja stóð aðeins á sér
KR var næstum því búið að bæta þriðja markinu við fyrir hálfleik, en skot Eiðs Gauta small í stönginni og frákastið frá Mathias Præst var varið. Staðan því 2-0 í hálfleik.
Skagamenn bugaðir
Eftir að hafa séð Skagamenn lenda tveimur mörkum undir bjuggust margir við að liðið myndi mæta dýrvitlaust út í seinni hálfleikinn, svo varð hins vegar ekki.

Skemmtikraftarnir slógu ekki slöku við
KR hélt áfram að spila sinn stórskemmtilega sóknarbolta og uppskar þrjú mörk til viðbótar.
Aron Sigurðarson lagði upp mark fyrir Mathias Præst á 64. mínútu. Sá danski var þar að skora sitt fyrsta mark fyrir KR í deildinni.

Aron var svo sjálfur á ferðinni á 85. mínútu með sitt annað mark í leiknum, eftir stoðsendingu Atla Sigurjónssonar sem var nýkominn inn af varamannabekknum.
Atli átti svo aðra stoðsendingu rétt fyrir leikslok þegar hann lagði fimmta markið upp á Eið Gauta Sæbjörnsson.




Dómarar

Elías Ingi er augljóslega enn með samviskubit eftir að hafa dæmt ÍA úr Evrópubaráttunni á síðasta tímabili. Sleppti Johannes Vall við eitt augljósasta spjald sem sést hefur í efstu deild.
Næstu lyftuferð verður þá ekki eins vandræðaleg.
Viðtöl

Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, sagði eftir 5-0 tap gegn KR að liðið þurfa að bæta við sig leikmanni fyrir lok félagaskiptagluggans eftir tvo daga, 29. apríl.
„Við verðum að sjá bara hvað er í stöðunni þar. Já það er alveg ljóst að við verðum að gera það“ sagði hann í lok viðtals við Gunnlaug Jónsson á Stöð 2 Sport eftir leik.
Um leikinn sjálfan sagði Jón Þór galið að hafa ekki skorað.
„Það er eiginlega alveg galið og bara óskiljanlegt hvernig við komumst í gegnum níutíu mínútur hérna án þess að skora mark“
Niðurstaðan er 5-0 tap og það hlýtur að vera áhyggjuefni
„Já heldur betur. Eitt af mörgum áhyggjuefnum. Maður áttaði sig ekki alveg á stöðunni í hálfleik, 2-0 undir en ekkert í leiknum gaf til kynna að það væri eðlileg niðourstaða.
Við gefum mjög ódýr fyrstu tvö mörk, sem er mjög fúlt og auðvitað lokaniðurstaðan hræðileg. Alveg ljóst að menn þurfa að koma grimmt til baka eftir það“ sagði Jón Þór en næsti leikur ÍA verður á grasinu á Akranesvelli sunnudaginn 4. maí.