Komdu með í ævintýri til Ítalíu Úrval Útsýn 20. maí 2025 08:57 Veróna er einstök heim að sækja. Borgin er ótrúlega falleg, með ríka sögu, skemmtileg söfn, lífleg hringtorg og fjölmarga góða veitingastaði. Ítalía hefur nær allt upp á að bjóða fyrir gott sumarfrí. Ítölsk matargerð er fyrir löngu heimsþekkt, landið býður upp á heillandi sögu og fallegar borgir með gömlum bæjarhlutum. Ekki má svo gleyma ströndunum sem iða af lífi, fjöri og ylvogum sjónum.
Eins og undanfarin ár býður Úrval Útsýn upp á fjölda skemmtilegra og spennandi ferða til Ítalíu þar sem hægt er að velja milli borgarferða, náttúruperlna og spennandi golfvalla. Allar ferðir til Ítalíu eru í beinu flugi með ítalska flugfélaginu Neos sem eykur enn frekar á stórkostlega ítalska upplifun. Lítum á nokkrar skemmtilegar ferðir til Ítalíu í sumar og í haust. Veróna er af mörgum talin fegursta borg Ítalíu og er erfitt að mótmæla því. Það verður enginn svikinn af heimsókn til Veróna og Gardavatns Það er ekki að ástæðulausu að Veróna er af mörgum talin fegursta borg Ítalíu og er þó samkeppnin mikil. Borgin er m.a. þekkt fyrir ekta ítalska menningu, fallegar kirkjur og byggingar, fróðleg og skemmtileg söfn, dæmigerðar þröngar götur, einstaka sögu, lífleg torg og svo auðvitað aragrúa veitinga- og kaffihúsa. Sannkölluð veisla fyrir öll skynfærin. Úrval Útsýn býður upp á þriggja daga helgarferðir til Veróna á bilinu 6. júní til 21. september og eru nokkrir fallegir gististaðir í boði. Flugtíminn er líka mjög heppilegur en flogið er frá Keflavíkurflugvelli kl. 8.30 á föstudagsmorgni og flogið heim frá Veróna kl. 18 á sunnudegi. Veróna, sem er sögusvið harmleiksins Rómeó og Júlíu eftir William Shakespeare, hefur upp á fjölmargt áhugavert til að skoða. Þar má m.a. nefna rómverska leikhúsið Arena di Verona sem er hringleikahús frá 1. öld og eitt af best varðveittu rómversku hringleikahúsum í heimi. Þar eru haldnar óperusýningar og tónleikar allt árið um kring. Frá Veróna er stutt í margar helstu perlur Ítalíu. Gamli bærinn í Veróna er á heimsminjaskrá UNESCO og býður upp á mörg falleg torg eins og Piazza delle Erbe og Piazza Bra, auk þess sem gamlar kirkjur og kastalar blasa við hvar sem gengið er. Einn kastalinn, Castelvecchio, er frá 14. öld og hýsir í dag listasafn með verkum frá miðöldum og endurreisnartímanum. Brúin Ponte Scaligero tengist kastalanum er vel þess virði að skoða enda falleg smíði. Borgin býður upp á fjölmarga úrvals veitingastaði í öllum verðflokkum enda ríkir mikil matar- og vínmenning í Verona. Vínræktarsvæðið Valpolicella liggur við borgina þar sem framleidd eru vönduð rauðvín. Það má því segja að ekki sé hægt að sofna svangur eða þyrstur í Veróna. Gardavatnið og umhverfi þess er rómað fyrir náttúrufegurð. Náttúruperlan Gardavatn er í 35 km. fjarlægð frá Veróna en vatnið og umhverfi þess er heimsfrægt fyrir mikla náttúrufegurð, há og falleg fjöll sem umlykja vatnið og úrvals vínframleiðslu. Svæðið býður upp á fjölmarga útivistamöguleika, svo sem gönguferðir, fjallgöngur og hjólaferðir. Það er ekki ónýtt að busla aðeins í Gardavatni og kæla sig niður í sumarhitanum. Fjölskyldu- og skemmtigarðurinn Gardalandia liggur við vatnið en þar ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Við vatnið má einnig finna fjölmarga fallega smábæi, hafnir og fallegar strendur. Við mælum sérstaklega með heimsóknum til bæjanna Riva del Garda, Malcesine, Bardolino og Sirmione. Calbria héraðið er staðsett í suðurhluta Ítalíu og er þekkt fyrir töfrandi landslag með hrikalegum fjöllum, hlíðum og yfir 800 kílómetra af strandlengju með kristaltæru vatni. Óspillt náttúra og raunverulega ítölsk upplifun Calabria héraðið er staðsett í suðurhluta Ítalíu og er þekkt fyrir töfrandi landslag með hrikalegum fjöllum, hlíðum og yfir 800 kílómetra af strandlengju með kristaltæru vatni. Héraðið nýtur Miðjarðarhafsloftslags með heitum, þurrum sumrum og mildum vetrum. Úrval Útsýn býður upp á 11 daga ferð til Calabria dagana 6.-16. október. Hægt er að velja milli þriggja glæsilegra gististaða með hálfu fæði og er fararstjórn í höndum Kolfinnu Baldvinsdóttur. Á sama tíma er boðið upp á ferð til Calabria í samvinnu við Úrvalsfólk, sem er klúbbur innan Úrvals Útsýnar ætlaður fólki 60 ára og eldri. Sú ferð býður upp á gistingu á Scoglio della Galea Resort and Spa sem er 4 stjörnu hótel með fallegu útsýni yfir Miðjarðarhafið og flóana í Capo Vaticano. Það er erfitt að lýsa fegurð Calabria með orðum. Calabria er fræg fyrir þjóðsögur, tónlist og hefðir en ekki síður fyrir matreiðsluhefðir sínar, þar á meðal kryddaða rétti úr chili pipar ræktuðum á svæðinu, ólífuolíu, ferskt sjávarfang og osta. Vín frá Calabria eru einnig mikilvægur hluti af menningu svæðisins. Höfuðstaður héraðsins er Catanzaro en einungis lítið sund skilur héraðið að frá Sikiley. Á svæðinu má m.a. finna þjóðgarðana Aspromonte og Sila þar sem hægt er að fara í gönguferðir og skoða ósnortna náttúru og fjölbreytt dýralíf. Í Calabria er m.a. hægt að heimsækja fornar rústir eins og rómverska leikhúsið í Cosenza, gríska leikhúsið í Locri og fornu borgina Kaulon. Miðaldakastalar og sjarmerandi þorp eru einnig á svæðinu, sem gefur ferðamönnum tækifæri á að kafa djúpt í menningu og sögu svæðisins. Eyjan Sikiley er oft nefnd drottning Miðjarðarhafsins enda frábær heim að sækja. Sikiley býður upp á stórkostlega möguleika Það er sannarlega draumi líkast að heimsækja Sikiley sem oft er nefnd drottning Miðjarðarhafsins, enda má segja að eyjan sé allt í senn; paradís matargerðar, menningar og loftslags. Úrval Útsýn býður upp á ellefu daga ferð til Sikileyjar dagana 20.-30. október þar sem gist er á tveimur fjögurra stjörnu hótelum með hálfu fæði. Fararstjórn er í höndum Margrétar Laxness. Palermo er stærsta borg Sikileyjar og um leið fimmta stærsta borg Ítalíu. Besti tíminn til að heimsækja Sikiley er á haustin sem er einmitt árstími þessarar spennandi ferðar. Landslagið á Sikiley á þessum árstíma er ægifagurt með sínum ávölum fjöllum, hásléttum og fallegum dölum. Virka eldfjallið Etna er svo aldrei langt undan. Margir líkja Sikiley við stórt fornminjasafn enda er menning eyjaskeggja suðupottur með hráefnum úr ólíkum áttum, m.a. blöndu af evrópskri- og Miðjarðarhafsmenningu með leifum frá fönikískum, grískum, rómverskum, arabískum, býsönskum og normönskum tímabilum sögunnar. Golfvöllurinn Il Picciolo er einstakur golfvöllur sem er staðsettur við rætur eldfjallsins Etna. Sömu daga, 20.-30. október, býður Úrval Útsýn upp á einstaka golfferð til Sikileyjar. Um er að ræða golfvöllinn Il Picciolo sem er staðsettur við rætur eldfjallsins Etna. Völlurinn hefur samlagast náttúrunni á einstakan hátt og hentar bæði byrjendum og lengra komnum kylfingum. Il Picciolo er ekki aðeins golfvöllur því hann er hluti af einstökum heimi þar sem kyrrð, fegurð og íþrótt sameinast. Öll þjónusta er í hæsta gæðaflokki, hvort sem um er að ræða æfingasvæði eða aðstöðu fyrir kylfinga. Gist er á Il Picciolo Etna Golf Resort sem er 4 stjörnu lúxushótel staðsett í kyrrlátu og gróðursælu umhverfi. Fararstjórn er í höndum Júlíusar Hallgrímssonar. Kynntu þér betur alla þessa skemmtilegu og áhugaverðu áfangastaði á vef Úrvals Útsýnar.
Ferðalög Sólin Ítalía Golf Mest lesið Jónas Sen sakaður um derring og meinfýsni Lífið Frumflutti „Hver er sá besti“ í Fíladelfíu árið 1985 Tónlist „Ekki ætlunin að særa heldur hrista aðeins upp í umræðunni“ Lífið „Allt annað að sjá einhvern sem var eins og ég“ Lífið Heillandi heimili Hönnu Stínu Lífið Glæsileg í Cannes í sérsaumaðri íslenskri hönnun Tíska og hönnun Hersir og Rósa greina frá kyninu Lífið Vill Ísrael og Úkraínu úr Eurovision Lífið Carmina Burana sem maður vill helst gleyma – hvað fór úrskeiðis í Hörpu? Gagnrýni Stóra stundin hjá þeim Rebekku og Ásgeiri Lífið Fleiri fréttir Stuðla að heilbrigði með lífrænum barnamat Komdu með í ævintýri til Ítalíu Viltu kynnast töfrum Taílands? Ný og endurbætt snyrtivörudeild opnuð í Hagkaup Pub Quiz hvar sem er, hvenær sem er! Fyrsta háhælahlaup Íslandssögunnar Ný hugsun í heimi brúnkuvara Fyrirtæki á Norðurlandi styðja SÁÁ Komdu með á ströndina — Ný sumarlína frá Moomin Arabia BAUHAUS býður þér í glæsilega afmælisveislu! Aldrei verið eins einfalt að bóka tíma Tork gaur: BMW neglir fallegan framenda Batinn á vefjagigt kom úr óvæntri átt Viltu vinna spennandi vinninga í vorleik Vísis? Tilbúnir réttir úr smiðju verðlauna kokks Sumarið er komið á Boozt Að eiga tæki frá Stihl er lífsstíll Persónuleg gjafakort sem renna aldrei út Viltu vinna skemmtilegar gjafir fyrir sumardaginn fyrsta? Ný fjarlækningaþjónusta fyrir sykursýkissjúklinga á Selfossi Fullkomnar sögur fyrir páskafríið Fyrsta 100% rafútgáfan af Porsche Macan Lúxus heilsulind á heimsmælikvarða fyrir Íslendinga Hátt í þúsund bangsar fengu hjarta fyrstu helgina Hollywood speglarnir slá í gegn Fullkomið tan og tryllt partý Krílaeggið er nýjasta páskaeggið frá Freyju Stórstjarnan Limahl mætir í N1 höllina í september Frábær fermingartilboð á hágæða sængum og koddum Polestar tekur þátt í HönnunarMars 2025 Sjá meira