Enski boltinn

Salah gagn­rýndi stuðnings­menn Liver­pool

Sindri Sverrisson skrifar
Trent Alexander-Arnold og Mohamed Salah hafa fagnað mörgum sætum sigrum saman.
Trent Alexander-Arnold og Mohamed Salah hafa fagnað mörgum sætum sigrum saman. Getty

Mohamed Salah segir að liðsfélagi sinn Trent Alexander-Arnold hafi ekki átt það skilið að þurfa að hlusta á baul frá hluta stuðningsmanna Liverpool, þrátt fyrir ákvörðun sína um að yfirgefa félagið og semja við Real Madrid.

Alexander-Arnold er fæddur og uppalinn í Liverpool og lék í fyrsta sinn með aðalliði félagsins árið 2016. Hann yfirgefur Englandsmeistarana í sumar og sú ákvörðun hans virðist fara afar illa í suma af stuðningsmönnum liðsins sem bauluðu á hann í 2-2 jafnteflinu við Arsenal síðasta sunnudag. Aðrir klöppuðu hins vegar fyrir honum.

„Mér fannst einhvern veginn að stuðningsmennirnir væru of harkalegir við hann,“ sagði Salah við Sky Sports.

„Mér fannst hann ekki verðskulda þetta á þessum tímapunkti. Hann á skilið að stuðningsmennirnir fari eins vel með hann og hægt er því hann hefur gefið þeim allt sem hann getur,“ sagði Salah.

„Ímyndið ykkur einhvern sem gefur ykkur allt sem hann á í tuttugu ár. Svona á þetta ekki að vera. Vonandi breytist þetta í næsta leik, gegn Brighton eða í síðasta leik tímabilsins, því hann á skilið að vera kvaddur með virktum,“ sagði Salah.

Alexander-Arnold, sem er 26 ára gamall, hefur spilað 353 leiki fyrir Liverpool í öllum keppnum og skorað 23 mörk. Hann hefur meðal annars unnið tvo Englandsmeistaratitla með liðinu, Meistaradeild Evrópu, enska bikarinn og enska deildabikarinn.

„Ég elska hann,“ sagði Salah um sinn fráfarandi liðsfélaga.

„Mér finnst hann eiga skilið að vera kvaddur með allra besta hætti. Hann hefur gert svo mikið fyrir borgina og fyrir félagið og hann er líklega einn besti leikmaður í sögu félagsins. Hann lagði allt í sölurnar,“ sagði Salah sem sjálfur ákvað að vera áfram hjá Liverpool og skrifaði undir samning til tveggja ára í síðasta mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×