Íslenski boltinn

Sigurður Breki viðbeinsbrotinn og frá í fjórar vikur

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Skjáskot úr útsendingu Stöðvar 2 Sports þar sem Sigurður sást sárþjáður eftir samstuðið.
Skjáskot úr útsendingu Stöðvar 2 Sports þar sem Sigurður sást sárþjáður eftir samstuðið. stöð 2 sport

Sigurður Breki Kárason, leikmaður KR í Bestu deild karla, viðbeinsbrotnaði eftir samstuð við Þórð Gunnar Hafþórsson, leikmann Aftureldingar, í leik liðanna á sunnudag. Sigurður verður frá í fjórar vikur vegna meiðslanna.

Atvikið átti sér stað á 85. mínútu leiksins, sem lauk með 4-3 sigri Aftureldingar. Sigurður Breki var nýkominn inn af varamannabekk KR. Þórður Gunnar mætti Sigurði af krafti þegar hann ætlaði að snúa með boltann.

Ekkert brot dæmt, bara hörð öxl í öxl sem má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

Upphaflega greindi Vísir frá því á sunnudag að Bjartur Bjarmi Barkarson hefði stjakað við Sigurði, þegar það var raunverulega Þórður Gunnar Hafþórsson. Það er hér með leiðrétt.

Leikurinn var stöðvaður skömmu síðar þar sem Sigurður lá óvígur og hann var tekinn af velli. Nú hefur viðbeinsbrot verið staðfest en þetta er í annað sinn sem Sigurður brýtur viðbein.

Hann verður frá í um fjórar vikur og missir af næstu leikjum KR, en ætti að vera klár í slaginn þegar liðið heimsækir Val á Hlíðarenda þann 23. júní. Ef fjögurra vikna tímalínan helst.

Hefði getað komið fyrir hvern sem er

Sigurður er smæsti leikmaður Bestu deildar karla og Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var spurður eftir leik hvort hann væri í hættu inni á vellinum, sökum stærðar.

„Hann hefur lifað af fjörutíu meistaraflokksæfingar með okkur og það er alveg tekið á honum þar. Jújú, auðvitað er hann lítill, auðvitað er hann ungur, en nei ég met ekki svo að hann sé í hættu. Það er okkar liðsins að spila á hann þannig að hann hafi tíma á boltanum…

Ég sá ekki nógu vel hvað gerðist þarna en jú, það er auðvelt að segja það núna [að hann sé í hættu], en enginn sem sagði það eftir Valsleikinn. Hann er bara leikmaður í meistaraflokki og kannski minni en flestir, en ég held að þetta hefði getað komið fyrir alla leikmenn í mínu liði“ sagði Óskar.


Tengdar fréttir

Sigurður Breki á spítala eftir harkalegt samstuð

Sigurður Breki Kárason varð fyrir hörðu samstuði og fór upp á spítala, aðeins átta mínútum eftir að hann kom inn af varamannabekknum í leik KR gegn Aftureldingu í Mosfellsbænum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×