Körfubolti

Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Martin Hermannsson er Alba Berlin liðinu afar mikilvægur.
Martin Hermannsson er Alba Berlin liðinu afar mikilvægur. Getty/Reinaldo Coddou

Alba Berlin endaði þriggja leikja taphrinu sína í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld með góðum heimasigri.

Alba Berlin vann sextán stiga sigur á Ratiopharm Ulm, 98-82, en þýsku meistararnir sátu í þrettánda sæti fyrir leikinn.

Íslenski landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson átti flottan leik með Alba Berlin, skoraði sex stig og gaf níu stoðsendingar.

Martin hafði bara spilað tvo af fyrstu fimm deildarleikjum Alba Berlin í vetur og því munaði mikið um að hann gat spilað í langþráðum sigri í kvöld.

Hann spilaði bara í rúmar fimmtán mínútur en spilaði liðsfélagana uppi hvað eftir annað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×