Fegin að hafa valið flottasta kjólinn fyrir óvænta trúlofun Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 29. maí 2025 07:02 Sunneva Einarsdóttir er viðmælandi í Tískutali. Vísir/Anton Brink „Hann gaf til kynna að ég myndi vilja vera í flottasta kjólnum sem ég tók með mér út. Ég var nokkuð ánægð með þetta lúkk,“ segir brosmild og nýtrúlofuð Sunneva Einarsdóttir um fatavalið þegar hennar heittelskaði Benedikt Bjarnason bað um hönd hennar í Mexíkó. Sunneva er viðmælandi í Tískutali þar sem hún veitir innsýn í fataskáp sinn.
Sunneva Einarsdóttir, fædd 1996, er líklega einn þekktasti áhrifavaldur landsins og sannkölluð ofurskvísa. Hún er menntaður viðskiptafræðingur, heldur uppi hlaðvarpinu Teboðið og er í raunveruleikaseríunni og vinkonuhópnum LXS. Tíska hefur alla tíð verið stór hluti af hennar lífi og tjáningu en hún er óhrædd við að leika sér með liti og flippaða og skemmtilega fylgihluti. Hér má sjá viðtalið við Sunnevu í heild sinni en í byrjun þáttar var púlsinn tekinn á heitustu sólgleraugnatískunni hjá Eyesland: Bleikt sumar en í dvala á veturna Sunneva hefur mjög gaman að tjáningarformi tískunnar og nýtur sín hvað mest á sumrin. „Svo fer ég í smá dvala á veturna,“ segir Sunneva kímin og bætir við: „Ég er smá kamelljón og fer alla leið með þær víbrur sem eru í gangi hverju sinni. Sérstaklega þegar ég er að ferðast, þá finnst mér ótrúlega gaman að pakka flíkum sem passa vel við umhverfið. Ég elska þema.“ View this post on Instagram A post shared by Sunneva Eir Einarsdóttir 🦋 (@sunnevaeinarss) Sem sjálfstætt starfandi hefur hún líka frelsi til þess að klæða sig eins og hún vill hverju sinni. „Ég mæti oft á fundi í öllu bleiku, bleikum galla með bleika derhúfu og ég hugsa vá, ég er eins og barn, ég á ekki að vera inni í einhverju fyrirtæki,“ segir Sunneva og hlær. Tímalaus trúlofunarkjóll Sunneva og Benedikt unnusti hennar fóru til Mexíkó fyrr á árinu ásamt vinapari. Þau fóru út sem kærustupar og komu heim trúlofuð. Sunneva segir að maðurinn hennar þekki hana vel en hann ýjaði að því að hún myndi vilja fara í fínasta kjólinn sem hún tók með kvöldið sem hann bað hennar. „Ég fór í pastelgrænan síðkjól sem er mjög tímalaus. Ég var bara nokkuð ánægð með þetta lúkk,“ segir hún brosandi. View this post on Instagram A post shared by Sunneva Eir Einarsdóttir 🦋 (@sunnevaeinarss) Hún óhjákvæmilega fór að velta fyrir sér hvað væri í vændum þetta kvöld en þó grunaði hana ekki að hann væri að fara að biðja hennar. Mjög lítil í sér sem barn Áhugi á klæðaburði hefur fylgt Sunnevu frá blautu barnsbeini. „Ég hef ekkert alltaf verið með flottasta stílinn og ég lít ekki á sjálfa mig sem eitthvað tísku icon. En frá því ég man eftir mér hef ég haft ótrúlega mikinn áhuga á að fylgjast með tískunni og klæða mig upp.“ Hún var sömuleiðis dugleg sem barn að kíkja í fataskáp móður sinnar og fá skemmtilegar flíkur að láni. „Ég hef alltaf haft gaman að þessu, fara í einhver fitt og taka myndir, fara í myndatökur úti í skógi eða í skemmtilegum undirgöngum.“ View this post on Instagram A post shared by Sunneva Eir Einarsdóttir 🦋 (@sunnevaeinarss) Ástríðan fyrir ljósmyndun fylgir henni enn í dag og nýtist vel við samfélagsmiðlavinnuna. „Ég var mjög lítil í mér sem barn og var mjög mikið inni í skelinni minni. Svo eftir að ég byrjaði á samfélagsmiðlum þá bara opnaðist allt, kannski aðeins of mikið jafnvel. Ég er að lifa drauminn sem litlu Sunnevu langaði alltaf að geta gert. Að geta unnið í kringum tísku, að taka myndir, hafa gaman, geta talað við fólk og verið opin.“
Tískutal Tíska og hönnun Mest lesið Fegin að hafa valið flottasta kjólinn fyrir óvænta trúlofun Tíska og hönnun Brad Pitt tjáir sig í fyrsta skipti um skilnaðinn Lífið Bakið er hætt að hefna sín Lífið samstarf Sjarmerandi miðbæjaríbúð listapars Lífið Kolféll fyrir New York en sér íslenska náttúru í hillingum Lífið KK og Sinfó: Clint Eastwood mætti í Eldborg Gagnrýni Heillaði að læra hefðirnar í Húsó Lífið „Þetta tekur svo svakalega á sálartetrið“ Lífið Tónlistarbransadrottning selur miðbæjarslotið Lífið Nýju Harry, Ron og Hermione fundin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Fegin að hafa valið flottasta kjólinn fyrir óvænta trúlofun Enginn til ama á hátíðinni Steldu stílnum af Birgittu Líf á frönsku rívíerunni Hvernig á að klæða sig fyrir körfuboltaleik? Glæsileg í Cannes í sérsaumaðri íslenskri hönnun Ógleymanleg upplifun á klósetti í norskum kastala Innsýn í framtíðarheim tískunnar á Íslandi „Broshýr var Bogi Ágústsson, er bindin sín Rúvurum gaf“ Þau allra nettustu á Met Gala Afhjúpaði óléttuna á epískan hátt enn og aftur Mikil tilhlökkun fyrir stærstu tískuhátíð í heimi Í sérsaumuðum kjól úr ónothæfum peysum Gærurnar verða að hátísku Húsfyllir þegar tískusýning tók yfir Ásmundarsal Sjáðu tískusýningu heitustu hönnuða framtíðarinnar Skúli Mogensen, Andri Snær og Sandra Barilli í stuði Troðfullt á opnun hjá ofurskvísum Héldu að hún væri rokkstjarna eða gift ríkum gaur Biður drottninguna að blessa heimilið Sjá meira