„Af hverju sit ég einn af öllum þessum mönnum fyrir framan dómara?“ Jón Þór Stefánsson skrifar 28. maí 2025 17:47 Málið varðar atvik sem áttu sér stað í sumarhúsi í Kiðjabergi í apríl á síðasta ári. Vísir/Vilhelm Maður sem lést í sumarhúsi Kiðjabergi í apríl í fyrra og maður sem er grunaður um að ráðast á hann og valda þar með dauða hans höfðu þekkt hvorn annan lengi lengi og samband þeirra var gott. Þetta sagði Gedirninas Saulys, 34 ára gamall litáískur karlmaður í aðalmeðferð í Héraðsdómi Suðurlands í gær. Hann er grunaður um árás sem varð hinum manninum að bana.
Gedirninas neitaði sök, en viðurkennir að hafa slegið hinn látna, en telur að áverkanir á honum passi ekki við einn eða tvo löðrunga sem hann segist hafa veitt honum. Hann telur líklegra að hinn látni hafi hlotið áverkana við það að falla. Jafnframt gaf hann til kynna að aðrir menn gætu borið ábyrgð á andláti hans. Gedirninas er ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás sem varð til þess að Viktoras Buchovskis, Litái á fertugsaldri, hlaut bana af. Umrædd árás mun hafa átt sér stað í sumarhúsi í Kiðjabergi í Grímsnes- og Grafningshreppi á laugardagsmorgni þann 20. apríl í fyrra. Honum er gefið að sök að beita Viktoras margþættu ofbeldi sem beindist að höfði, hálsi og líkama hans. Meðal annars er Gedirninas sagður hafa slegið Viktoras tvívegis meðan hann sat í stól sem varð til þess að hann féll til jarðar. Fyrir vikið hafi Viktoras hlotið margþætta áverka, en hann er talinn hafa látist vegna heilaáverka. Ekki góðar aðstæður Gedirninas og Viktoras, ásamt þremur öðrum karlmönnum, voru í og við bústaðinn í Kiðjabergi í umrætt sinn. Þeir munu hafa verið þar á vegum verktakafyrirtækis þar sem þeir unnu á þaki húss, og bjuggu í öðru sumarhúsi meðan vinnan fór fram. Að sögn Gedirninas bjuggu þeir ekki við neitt sérlega góðar aðstæður, og tók hann fram að hann ætti enn eftir að fá greitt fyrir vinnu sína hjá verktakafyrirtækinu. Sá hann í síðasta skipti og svo skuggann hans Fyrir dómi í gær lýsti Gedirninas föstudagskvöldinu daginn áður en atvik málsins áttu sér stað. Hann sagði að þá hefði hann, Viktorias og enn annar maður klárað vinnu og svo drukkið saman, líklega til miðnættis. Snemma um laugardagsmorguninn hefði Viktorias vakið hann og sagst finna fyrir verk. Gedirninas hafi sagst ölvaður og ekki getað farið með hann á næstu sjúkrastofnun. Hann hafi þó stungið upp á því að fá annan til að skutla honum, en Viktorias ekki viljað það. Síðan hefðu þessir þrír menn farið á fætur og fengið sér kaffi og bjór. Viktorias hefði verið drukkinn og dónalegur. Hann hafi bæði rifist við þriðja manninn um peninga, og svo við Gedirninas sjálfan. Gedirninas hafi reiðst og slegið hann, einu sinni eða tvisvar, og Viktorias fallið til jarðar. Þar á eftir sagðist Gedirninas hafa hjálpað Viktorias að koma sér á fætur, og svo inn í herbergi og lagt hann til rekkju. Það hafi verið í síðasta skipti sem hann sá Viktorias. Síðan hafi Gedirninas reykt með þriðja manninum og svo farið sjálfur að sofa aftur. Það hafi líklega verið upp úr klukkan tíu þennan sama morgun. Gedirninas minntist þess að á meðan hann hafi legið uppi í rúmi, sem hafi verið á annarri hæð hússins, hafi Viktorias verið að klifra upp bústaðinn. Líklega hafi Viktorias stungið höfðinu inn um gluggann, og talað við hann, en hann minntist þess að þeir hefðu hlegið eitthvað saman. Gedirninas sagðist ekki hafa séð Viktorias í það skipti, heldur líklega einungis skuggann á honum. Hann taldi þetta geta ýtt undir kenningu sína um að Viktorias hafi hlotið áverka sína vegna falls. Gedirninas hafi svo sofnað aftur og vaknað við lögregluna, sem hafi þá verið komin á vettvang. „Við klögum ekki hvorn annan“ „Ég vil bara spyrja: Hvers vegna er ég einn af þessum fjórum körlum er ákærður í málinu?“ spurði Gedirninas meðan tekin var skýrsla af honum fyrir dómi. Hann sagði á meðan hann hafi verið sofandi hafi Viktorias verið niðri, ásamt áðurnefndum þriðja manni, og tveimur öðrum. „Þeir voru allir saman niðri, fjórir saman niðri meðan ég var sofandi. Af hverju var ekki rannsakað og skoðað hvað var að gerast niðri?“ Gedirninas sagði að mennirnir sem voru niðri, að Viktorias undanskildum, væru vinir. Hann lýsti einum þeirra sem lygara og „tvöfaldri manneskju“. Þá var Gedirninas spurður út í atriði í framburði eins þessara þriggja sem hann kannaðist ekki við. Gedirninas sagðist telja að sá hefði svarað með þeim hætti til að bjarga „rassinum á sjálfum sér“. Hann væri ekki hissa ef svo hefði verið. Spurður nánar út í þetta sagði Gedirninas: „Það er regla hjá okkur: Við klögum ekki hvorn annan.“ Þegar hann var spurður hvað hann ætti við með því, og hvort það hefði verið eitthvað tilefni til að „klaga“ vildi hann lítið segja. Hann sagðist ekki getað svarað fyrir hvað hefði átt sér stað meðan hann svæfi, en allskonar mögulegt hefði getað gerst. Aftur spurði Gedirninas: „Af hverju sit ég einn af öllum þessum mönnum fyrir framan dómara?“ Sagðist reyna að púsla saman atvikunum Saksóknari spurði Gedirninas út í ýmislegt sem honum virtist finnast ólíkt í fyrri framburði Gedirninas og nú fyrir dómi. Til að mynda hvort hann hafi farið að reykja fyrir eða eftir að hann leiddi Viktorias inn í herbergi, og hvort þriðji maðurinn hafi séð hann slá Viktoras. „Ég var ekki að horfa á bíómynd. Ég var bara að reyna að púsla saman þessum atvikum. Ég var enn í sjokki eftir þetta allt saman,“ sagði Gedirninas um að mögulega hafi fyrri framburður hans verið eitthvað óljós. Tekið fyrir á ný í héraði Aðalmeðferð Kiðjabergsmálsins hófst í Héraðsdómi Suðurlands í gær og fyrirhugað er að henni ljúki seinna í dag. Þess má geta að héraðsdómur vísaði málinu frá dómi í lok janúar. Það var mat dómsins að ákæran væri of óljós. Atburðarásin sem ákært væri fyrir væri ekki nægjanlega skýr í ákærunni. Sú ákvörðun dómsins var kærð til Landsréttar, og sneri hann úrskurðinum við. Að mati Landsréttar hefði saksóknari þurft að geta í eyðurnar til þess að gefa út nákvæmari ákæru. Því var málið sent aftur í hérað.
Manndráp í Kiðjabergi Dómsmál Grímsnes- og Grafningshreppur Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Fleiri fréttir Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Sjá meira