Ekki bara tónleikar heldur alhliða þungarokkshátíð Jón Ísak Ragnarsson skrifar 4. júní 2025 10:02 Gísli Sigmundsson er einn skipuleggjenda hátíðarinnar. Myndin hægra megin er frá hátíðinni í fyrra, þegar HAM tróðu upp við mikinn fögnuð. Instagram Þungarokkshátíðin Sátan verður haldin öðru sinni í Stykkishólmi um helgina og er stemningin gríðarlega góð að sögn skipuleggjenda. Herlegheitin hefjast á fimmtudaginn og er undirbúningur á lokametrunum.
Sátan var haldin í fyrsta skipti í fyrra og verður leikurinn endurtekinn um helgina. Hátíðin virðist vera marka sér sess sem aðalhátíð íslensks þungarokks eftir að Eistnaflug á Neskaupsstað lagðist af. Þungarokksveisla framundan Gísli Sigmundsson er einn eigenda hátíðarinnar og aðalskipuleggjandi. Hann segir að hátíðin sé eins konar árshátíð íslensks þungarokks, eða uppskeruhátíð. „Stemningin er góð og við erum tilbúin að renna í frábæra þungarokksveislu um helgina,“ segir Gísli. Af þeim hljómsveitum sem koma fram er meginuppistaðan íslensk, en nokkur erlend nöfn leynast inn á milli. „Stærstu erlendu hljómsveitirnar eru til dæmis Carcass, Discharge, Taake, og Vader,“ segir Gísli. Gísli kveðst mjög sáttur við það hvernig tókst til að púsla dagskránni saman í ár. Hátíðin sé ívið stærri en í fyrra, og erlendu hljómsveitirnar séu örlítið frægari en þær sem voru á hátíðinni í fyrra. Á dagskrá er fjölbreytt flóra þungarokks.Sátan Hins vegar sé lokaatriði hvers kvölds alltaf íslensk hljómsveit. „Við ákváðum það þegar við byrjuðum á þessu, til að undirstrika að þetta sé íslensk hátíð þótt við séum með erlenda gesti líka. Erlendu böndin eru mögulega stærri nöfn en það hefur samt komið betur út að hafa íslensku síðast. Það sást til dæmis á Eistnaflugi að fólk hélst betur inni þegar íslensku böndin lokuðu kvöldinu,“ segir Gísli. Íslensk hljómsveit með langþráða endurkomu Íslenska hljómsveitin sem slær botninn í fimmtudagskvöldið ber nafnið Sorocide, sem hefur ekki spilað síðan 2009. Gísli sjálfur er söngvari og bassaleikari í þeirri hljómsveit. „Við unnum músiktilraunir 1991 og gáfum út plötu eftir það. Við vorum starfandi í nokkur ár og gáfum út smotterí í kringum það. Svo komum við aftur saman 2009 og spiluðum nokkra tónleika, en lögðumst svo í dvala. Á fimmtudaginn verður svo síðasta giggið okkar,“ segir hann. „Við erum að gefa út lag í vikunni í tilefni tónleikanna, sem var samið árið 1991 en aldrei gefið út. Við tókum þetta bara upp nýlega.“ Eru menn spenntir fyrir þessari endurkomu? „Já svona vonandi, maður heyrir allavegana af einhverjum sem eru spenntir,“ segir Gísli. Á föstudaginn verður það svo hljómsveitin The Vintage Caravan sem lokar kvöldinu og þar á eftir verður það Skálmöld, sem stígur á stokk á miðnætti laugardagskvöldið og lokar hátíðinni. Skálmöld slær botninn í hátíðina að þessu sinni. Hljómsveitin er landsmönnum vel kunnug.Skálmöld Dagskráin fjölbreytt Gísli segir að ákvörðun hafi verið tekin á sínum tíma að Sátan verði hefðbundin þungarokkshátíð. Á dagskránni séu því allar gerðir þungarokkstónlistar, harðkjarni, svartmálmur, dauðarokk, dómsdagsrokk, víkingarokk, og þar fram eftir götunum. „Við viljum helst vera með allar tegundir af þungarokki. En við förum ekki út í raftónlist eða indí eins og sumar hátíðir gera.“ Dagskrá hefst klukkan tvö á fimmtudaginn, en fyrripartinn alla daga verður ráðstefnudagskrá sem er opin öllum, ekki aðeins hátíðargestum. Þar verður dagskrá eins og gítarkennsla, bassaklíník, og umræður um þungarokksiðnað og fleira. Þetta verður í gangi frá hádeginu þangað til tónleikar hefjast um fjögurleytið. Meðal þess sem er á ráðstefnudagskránni eru umræður um víkingaarfleið í þungarokki, en þar mun Guðni Th. Jóhannesson fyrrverandi forseti Íslands taka þátt ásamt Snæbirni Ragnarssyni í Skálmöld og Gunnari Sauermann, þýskum þungarokksbransakalli. Pallborðsumræður verða um víkingaarfleið í þungarokki. Fyrrverandi forseti Íslands er meðal þeirra sem taka þátt.Sátan „Þessi hátíð er líka hugsuð sem tengslamyndun fyrir íslenskar hljómsveitir, en þarna verður fjölbreytt flóra fólks úr þungarokksbransanum víða um heim. Þetta eru ekki bara tónleikar heldur alhliða þungarokkshátíð,“ segir Gísli. Borgar enga reikninga Gísli segir síður en svo að maður verði moldríkur af því að halda svona hátíð á Íslandi. „Nei langt frá því, þetta borgar enga reikninga. Þetta er allt í sjálfboðavinnu, þetta er hobbí sem tekur rosalegan tíma. En þetta er mjög skemmtilegt engu að síður og mjög gefandi,“ segir hann. Hann segir að miðasalan hafi gengið mjög vel hingað til, þrátt fyrir að Íslendingar kaupi miða sína yfirleitt mjög seint. „Þetta hefur verið rólegt framan af, en það gengur betur en í fyrra og það er nú það sem miðað er við. Ég veit ekki hvort það verði uppselt en við erum allavegana mjög jákvæð með miðasöluna í ár.“ Erlendum gestum fari fjölgandi milli ára. Hátíðin verður haldin í Stykkishólmi, sem er að sögn Gísla fallegasti bær landsins.Vísir/Vilhelm „Það eru fleiri og fleiri erlend nöfn sem poppa upp. Við höfum verið að markaðssetja okkur erlendis, með fólk á hátíðum með auglýsingar, það hefur skilað sér vel. Vonandi skilar það erlendum gestum, sem geta þá upplifað íslenskt þungarokk og séð Stykkishólm, sem er náttúrulega fallegasti bærinn á landinu,“ segir Gísli. Fólk klæði sig bara vel og bíti á jaxlinn Gísli segir að þrátt fyrir að veðurspáin sé ekki með besta móti þýði ekki að leggjast í kör, en gular viðvaranir og jafnvel appelsínugular eru í kortunum eins og sakir standa. Þess má geta að sama var uppi á teningnum í fyrra, þegar hátíðin var einnig haldin fyrstu helgina í júní. „Við erum kannski ekki alveg sérlega spennt fyrir veðrinu, en við búum á Íslandi og þurfum að vera viðbúin öllu. Við lentum líka í gulum og appelsínugulum viðvörunum í fyrra, það fer að líða að því að maður taki þessu persónulega,“ segir Gísli. Reyndar sé útlit fyrir að Stykkishólmur sleppi ágætlega, og veðrið eigi að ganga niður með vikunni. „Þannig ég held þetta verði innnan marka. Við vonum bara að það verði ekki of hvasst fyrir þá sem tjalda. Svo er það bara að klæða sig vel, bíta á jaxlinn, og skemmta sér með þungarokki,“ segir Gísli Sigmundsson.
Stykkishólmur Tónlist Tónleikar á Íslandi Mest lesið Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Lífið Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Lífið Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Lífið Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Lífið Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig Lífið Samdi lagið meðan hún gekk í gegnum erfiða tíma Tónlist Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Lífið Fleiri fréttir Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sjá meira