Innherji

Veru­legur munur í á­vöxtun inn­lendra sjóða með virka stýringu síðustu þrjú ár

Hörður Ægisson skrifar
Aðstæður á innlendum hlutabréfamarkaði verið afar krefjandi undanfarin ár en Úrvalsvísitalan, svo dæmi sé tekið, er þannig nánast á sömu slóðum nú um stundir og hún var í byrjun júlí 2022.
Aðstæður á innlendum hlutabréfamarkaði verið afar krefjandi undanfarin ár en Úrvalsvísitalan, svo dæmi sé tekið, er þannig nánast á sömu slóðum nú um stundir og hún var í byrjun júlí 2022. samsett

Verulegur munur er á gengi yfir tuttugu innlendra fjárfestingarsjóða sem beita virkri stýringu á undanförnum þremur árum, sem hafa einkennst af krefjandi markaðsaðstæðum hér á landi, en uppsöfnuð ávöxtun þess sjóðs sem hefur skarað fram úr er um 150 prósent á meðan þeir sjóðir sem reka lestina eru niður um ríflega 70 prósent. Stjórnendur rafmyntasjóðsins Visku telja að ný heimsmynd, sem muni meðal annars mótast af tollastríði og aukinni geópólitískri spennu, kalli á róttæka endurskoðun á eignasafni fjárfesta.


Tengdar fréttir

Kerfi alþjóða­við­skipta í upp­námi og erfitt að verð­leggja áhættu til lengri tíma

Ákvörðun Donald Trumps að efna til viðskiptastríðs við helstu viðskiptaþjóðir Bandaríkjanna með því að setja á sögulega háa innflutningstolla hefur sett fyrirkomulag alþjóðaviðskipta í uppnám, sem ekki sér fyrir endann á, og fjárfestar eiga afar erfitt með að verðleggja áhættu til lengri tíma, að sögn framkvæmdastjóra Visku. Vegna mikillar óvissu í efnahagsumhverfinu sé þetta ekki rétti tíminn til að „spila aggressífan leik“ en hann telur óhjákvæmilegt að Seðlabanki Bandaríkjanna bregðist við hratt versnandi efnahagshorfum með lækkun vaxta ásamt öðrum aðgerðum til að auka seljanleika á markaði og enginn eignaflokkur „hlaupi hraðar“ í þeim aðstæðum en rafmyntir.

Gott gengi tækni­fyrir­tækja hefur aukið samþjöppun er­lendra eigna líf­eyris­sjóða

Með auknu vægi bandarískra tæknifyrirtækja í heimsvísitölu hlutabréfa hefur orðið talsverð samþjöppun þegar litið er til erlendra hlutabréfafjárfestinga íslensku lífeyrissjóðanna á síðustu árum, samkvæmt greiningu Seðlabankans, og eignarhlutur tíu stærstu félaganna í eignasöfnum sjóðanna nemur núna samanlagt um tíu prósent af öllum erlendum eignum þeirra. Miklar lækkanir hafa einkennt bandaríska hlutabréfamarkaðinn á undanförnum vikum en fjárfestingarstefnur lífeyrissjóðanna hér á landi fyrir árið 2025 sýna að sjóðirnir ætla sér að fara varlega í að auka vægi sitt frekar í erlendum eignum eins og sakir standa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×