Innherji

Telur Nova veru­lega undir­verðlagt og segir fé­lagið „aug­ljóst“ yfir­töku­skot­mark

Hörður Ægisson skrifar
Hlutabréfaverð Nova hefur verið nokkurri siglingu undanfarna mánuði og er upp um liðlega þrjátíu prósent frá síðasta hausti.
Hlutabréfaverð Nova hefur verið nokkurri siglingu undanfarna mánuði og er upp um liðlega þrjátíu prósent frá síðasta hausti. GUNNAR SVANBERG SKULASON

Núna þegar Nova er byrjað á vaxtarvegferð, eftir kaupin á minnihluta í Dineout, ásamt því að ráða yfir meiri innviðum en hin fjarskiptafyrirtækin þá er félagið meðal annars „augljóst“ yfirtökuskotmark, að mati hlutabréfagreinanda. Í frumskýrslu um Nova er félagið verðmetið langt yfir núverandi markaðsgengi, nokkuð hærra en hjá öðrum greinendum, en hlutabréfaverðið tók mikið stökk á markaði sama dag og hún birtist.


Tengdar fréttir

LSR byggir upp stöðu í fjarskiptafélaginu Nova

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) er orðinn einn allra stærsti hluthafi Nova eftir að hafa sópað upp bréfum í fjarskiptafélaginu á síðustu dögum ársins 2022. Hlutabréfaverð Nova, sem hefur átt undir högg að sækja frá því að það var skráð á markað um mitt síðasta ár, hefur farið hækkandi undanfarnar vikur og ekki verið hærra frá því um miðjan september.

Selur allt sitt í Nova

Stærsti einstaki hluthafi fjarskiptafyrirtækisins Nova hefur selt öll hlutabréf sín í fyrirtækinu. Félagið, Nova Acquisition Holding ehf., átti 11,1 prósent hlut í Nova eða 424.495.186. Hlutabréfin voru seld á genginu 4,8 krónur fyrir rúmlega tvo milljarða króna.

Hlutafjárútboð Nova og þegar partýið í Kauphöllinni klárast

Markaðsaðstæður hafa sjaldan verið eins krefjandi frá því eftir fjármálahrunið 2008. Úrvalsvísitalan er niður um meira en 22 prósent frá áramótum – skilgreining á því sem er gjarnan nefnt bjarnarmarkaður – og útlit er fyrir enn frekari skarpar vaxtahækkanir Seðlabankans á næstu mánuðum eigi að takast að ná böndum á verðbólgu og hækkandi verðbólguvæntingum.

Margrét hættir sem forstjóri Nova

Margrét Tryggvadóttir, forstjóri Nova, hefur óskað eftir að láta af störfum eftir sjö ár í forstjórastól og 18 ár hjá félaginu. Hún mun gegna starfinu áfram til 1. desember og sinna ráðgjöf fyrir félagið eftir að hún lætur af störfum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×