Herra Hnetusmjör og Sara keyptu draumahúsið Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 10. júní 2025 13:25 Kærustuparið Herra Hnetusmjör og Sara Linnet. Vísir/Hulda Margret Tónlistarmaðurinn Árni Páll Árnason, Herra Hnetusmjör, og unnusta hans Sara Linneth Castañeda, sérfræðingur í mannauðsmálum hjá 66°Norður, hafa fest kaup framtíðarheimili þeirra í Hvörfunum í Kópavogi. Sara greindi frá tímamótunum á samfélagsmiðlum á dögunum. „
Draumaeignin okkar er núna framtíðarheimilið okkar,“ skrifaði Sara við mynd af Árna fyrir utan nýja húsið. Sjá: Herra Hnetusmjör og Sara selja lúxusíbúð innan við ári eftir kaupin Franskir gluggar og síldarbeinamynstur Um er að ræða 274 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum, byggt árið 2009. Húsið stendur á rúmgóðri og skjólsælli eignarlóð, umvafið háum trjám og fallegum gróðri sem tryggja næði og notalegt umhverfi. Húsið einkennist af einstakri sveitasetursstemningu þar sem aukin lofthæð og franskir gluggar mynda hlýlegt og glæsilegt yfirbragð. Rýmisskipanin er opin og rúmgóð, með stórum stofum, eldhúsi, fjórum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, þvottahúsi og bílskúr sem hefur verið breytt í stúdíóíbúð eða vinnustofu. Á gólfum er gegnheilt parket í klassísku síldrabeinamynstri. Í miðri stofunni er stór og glæsilegur arinn sem setur heillandi og hlýlegan svip á rýmið. Eldhúsið er prýtt stílhreinni hvíttri innréttingu með góðu skápaplássi. Þar er notalegur borðkrókur við gluggann og hurð út í garð. Vandað viðarstigi tengir hæðirnar og liggur upp á efri hæðina, þar sem meðal annars er hjónasvíta og rúmgott skrifstofuherbergi. Útgengt er úr skrifstofunni um tvöfalda franska hurð út á svalir, þar sem opnast fallegt útsýni, meðal annars yfir Elliðavatn. Hjónaherbergið er sannkölluð svíta, með gegnheilu parketi á gólfi, fataherbergi og sér baðherbergi með sturtu. Hér að neðan má sjá myndir af húsinu. Fastinn.is Fastinn.is Fastinn.is Fastinn.is Fastinn.is Fastinn.is
Fasteignamarkaður Hús og heimili Tónlist Kópavogur Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Glee snýr aftur Bíó og sjónvarp Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Fleiri fréttir Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Sjá meira