Myndaveisla frá Hveragerði þar sem Bylgjulestin var í beinni Bylgjulestin 11. júní 2025 12:20 „Stemningin í bænum var stórkostleg og það var ótrúlega gaman að sjá allan þann fjölda sem mætti til að heimsækja Hveragerði og hvetja sitt fólk áfram í hlaupinu,“ sagði Kristín Ruth Jónsdóttir, dagskrárgerðarkona á Bylgjunni en hún mun stýra Bylgjulestinni í sumar ásamt þeim Braga Guðmunds og Sigvalda Kaldalóns. Myndir/Viktor Freyr. Fyrsti viðkomustaður Bylgjulestarinnar í sumar var Hveragerði en þar kom hún sér vel fyrir síðasta laugardag innan um fjölda góðra gesta og hlaupara sem tóku þátt í utanvegahlaupinu Hengill Ultra Trail sem fór fram dagana 6. og 7. júní. „
Stemningin í bænum var stórkostleg og það var ótrúlega gaman að sjá allan þann fjölda sem mætti til að heimsækja Hveragerði og hvetja sitt fólk áfram í hlaupinu,“ sagði Kristín Ruth Jónsdóttir, dagskrárgerðarkona á Bylgjunni en hún mun stýra Bylgjulestinni í sumar ásamt þeim Braga Guðmunds og Sigvalda Kaldalóns. „Veðrið var ótrúlega fallegt, sólin skein inn á milli og hlýjaði þá loftið en þetta var fullkomið veður fyrir alla þá hörku hlaupara sem voru mættir í Hengil Ultra. Það fór vel um okkur Braga inni í Bylgjulestinni þegar það dró fyrir sólu en annars var gott að standa úti í Hveragerði.“ Viktor Freyr ljósmyndari var á staðnum og fangaði stemninguna í bænum. Einar Bárða var einn góðra gesta sem kíkti í heimsókn. Það má með sanni segja að Hengill Ultra hlaupið hafi sett svip á Hveragerði þennan daginn. „Það var ótrúlegt að sjá allan þennan fjölda af fólki. Það er greinilega að utanvegarhlaup er að koma sterkt inn og ég held að það hafi verið met fjöldi fólks sem tók þátt í ár. Það var stórkostlegt að sjá þetta og manni langaði bara að reima á sig hlaupa skóna og vera með!“ Þátttakendur í Hengli Ultra voru ekkert eðlilega peppaðir. Eins og venjuleg mætti fjöldi góðra gesta í heimsókn. „Einar Bárða kom til okkar og sagði okkur allt um Hengil Ultra, fór í gegnum hlaupaleiðirnar, hvernig þessi keppni byrjaði og hvað væri framundan. Brynjólfur J. Baldursson mætti einnig í heimsókn og ræddi stórkostlega uppbyggingu þeirra í bænum en hann er eigandi Gróðurhússins í Hveragerði, sem er mathöll, verslun og hótel. Utanvegahlaupið Hengill Ultra Trail setti skemmtilegan svip á bæjarlífið þegar Bylgjulestin var í bænum á laugardaginn. Hann sagði okkur einnig frá uppbyggingunni sem er að eiga sér stað innar í bænum þar sem er fyrirhugað að opna baðlón og svo auðvitað Mega Zipline bæjarins sem þeir standa einnig fyrir. Að lokum kíktu þeir Gunni Óla og Addi Fannar úr Skítamóral í heimsókn en sveitin var með tónleika um kvöldið á Selfossi.“ Það er því ljóst að Kristín var mjög ánægð með daginn. „Það var ótrúlega gaman að sækja Hveragerði heim! Við fengum að smakka bestu pizzur landsins á Hoflandi og hittum mikið af frábæru fólki. Takk fyrir að taka svona vel á móti okkur.“ Samstarfsaðilar Bylgjulestarinnar voru að sjálfsögðu með í för. Sjóvá og Samgöngustofa fjölluðu um umferðaröryggi, Topptjöld og vagnar sýndu iKamper vagna, gestir gæddu sér á 7up Zero og bílaumboðið Askja var með bílasýningu. Yngsta kynslóðin naut dagsins með Bylgjulestinni. Næstu áfangastaðir Bylgjulestarinnar í sumar: 14. júní Akureyri 21. júní Hallormstaðarskógur 28. júní Hafnarfirði 5. júlí Akranes 13. júlí Selfoss 19. júlí Hljómskálagarðurinn 26. júlí Vaglaskógur
Bylgjan Bylgjulestin Hveragerði Mest lesið Hvar er Mollý Tik Tok skinka í dag? Lífið Miðar á Kaleo endurseldir á margföldu verði Lífið Eitt glæsilegasta hrossabú landsins falt fyrir tæpan einn og hálfan milljarð Lífið Elta drauminn um hægara líf eftir fjögur ár á Íslandi Lífið Upplifa hótel lúxus í tjaldútilegunni Lífið samstarf Landsliðsmaður gifti sig í Vík í Mýrdal Lífið „Núna þori ég miklu meira“ Tíska og hönnun Drakk ógeðslega illa og hætti eftir blindafyllerí Lífið Sólveig og Halldór gáfu dótturinni nafn Lífið Vala Grand og Brynjólfur flytja á Skagann Lífið Fleiri fréttir Icewear verður einn af aðalstyrktaraðilum Íslandsmótsins í golfi 2025 Upplifa hótel lúxus í tjaldútilegunni Myndaveisla frá Hafnarfirði - Bylgjulestin 2025 Bylgjulestin mætir á Hjarta Hafnarfjarðar á laugardag Reykjalundur hlýtur alþjóðlega gæðavottun fyrir endurhæfingarþjónustu Myndaveisla frá Hallormsstað - Bylgjulestin 2025 90% þeirra sem upplifa hárlos meðhöndla það ekki - það er þó hægt Bylgjulestin verður í Hallormsstaðaskógi á laugardag Taktu þátt í sumarbókaviku á Bylgjunni og Vísi Aukasýningu bætt við á vinsælustu ABBA sýningu heims Iðnaðarmaður ársins fer í frí – sjáumst að ári! Bylgjulestin tók þátt í Bíladögum - myndaveisla Myndband við Þjóðhátíðarlagið frumsýnt á Vísi Iðnaðarmaður ársins hlustar á IceGuys til að koma sér í stuð Bylgjulestin verður í stuði á Bíladögum á Akureyri Myndaveisla frá Hveragerði þar sem Bylgjulestin var í beinni Ferð þú til Ástralíu með Bondi Sands og KILROY? Stálheppinn viðskiptavinur N1 vann frítt flug í heilt ár með PLAY Einn heppinn vinnur frítt flug í heilt ár með PLAY Bylgjulestin brunar af stað inn í sumarið Vinsælasta ABBA sýning heims kemur til Íslands Unga fólkið sækir í svissnesk TAG Heuer A Country Night in Nashville kemur í Hörpu Orsakir flösu og áhrifarík meðferð „Það er alls ekki í tísku að brenna“ Sjá meira