90% þeirra sem upplifa hárlos meðhöndla það ekki - það er þó hægt Regalo 23. júní 2025 09:12 Fríða Rut Heimisdóttir, hárgreiðslumeistari og eigandi Regalo ehf segir fæst þeirra sem upplifa hárlos reyna meðferð. Það sé þó hægt að vinna gegn hárlosi, þolinmæði og mildi ásamt trú á ferlið þurfi til. Yfir 88% kvenna segjast hafa fundið fyrir hárlosi á lísfleiðinni og af þeim eru 40% um 35 ára. Fríða Rut Heimisdóttir, hárgreiðslumeistari og eigandi Regalo ehf heildsölu segir margvíslegar tilfinningar kvikna hjá konum við hárlos og algengastar eru áhyggjur. „
90% þeirra kvenna sem upplifa hárlos meðhöndla það ekki en það er þó hægt. Spurðar af hverju sögðu konurnar margs konar tilfinningar fylgja hárlosinu, sumar sögðust leiðar, aðrar fundu fyrir kvíða og áhyggjum og skömm og margar vissu ekki hvert væri best að leita upplýsinga varðandi hárlos. Við verðum að horfa á hárið sem spegil að innri heilsu – þegar eitthvað er að að innan, getur það komið fram í hárinu." Hvað er hárlos? „Lífsferill hárs er einfaldur, það vex, dettur svo af og nýtt hár tekur að vaxa. Langoftast detta hárin af jafnt og þétt og vaxa sömuleiðis. En hárlosi er almennt hægt að skipta í tvennt, það að missa hár og fá það aftur og eða missa hár og fá það ekki aftur, það kallast skallamyndun. Þættir sem ráða hárlosi geta verið marg konar s.s. erfðir, hormónavandamál og öldrun. Eins geta áföll valdið skyndilegu hárlosi, slys og ýmsir sjúkdómar og meðferðir við þeim, t.d. geisla-eða lyfjameðferðir. Við mikil veikindi eða álag getur hárlos orðið meira en ella. Þetta sést hjá þeim sem hafa lent í því að veikjast alvarlega. Hárlosið verður þó oft ekki beint í kjölfar veikindanna, heldur 3-6 mánuðum seinna. Dæmi um kvilla sem geta valdið hárlosi er járnskortur og truflun á starfsemi skjaldkirtils. Öðru máli gegnir ef hárlos dreifist ójafnt um höfuðið, þannig að há kollvik myndast eða skallatungl. Í þeim tilvikum ætti viðkomandi að leita læknis og ef um konu er að ræða að láta athuga hormónastarfsemina. Þá geta sum lyf haft hárlos sem aukaverkun. „Hárlos margra tengdist lífstíl og öðrum tengdum hlutum eins og meðgöngu,“ segir Fríða Rut og heldur áfram. „Hárið er oft óvenju þykkt og ræktanlegt á meðgöngu en u.þ.b. hálfu ári eftir fæðingu verður mikið hárlos og hárið rytjulegt. Það eru breytingar á hormónum og þá sérstaklega estrogeni sem hefur þau áhrif að það eru engin hár sem falla heldur bætast í sífellu við ný hár í hársverðinum. Eftir meðgöngu ganga þessi hormón til baka og við missum mikið af meðgönguestragoninu. Það góða við þessa tegund af hárlosi að það er tímabundið.“ Hægt að að örva hárvöxt Fríða Rut segir að það sé ýmislegt sem hægt sé að gera til að örva hárvöxt og mælir hún með hágæða hárvörunum frá Kérastase Paris og L´oreal Professional sem eru meðal virtustu hárvörumerkja heims þegar kemur að faglegri meðferð, með klínsíkum virkum efnum gegn ýmsum hársvarðarvandarmálum og þar á meðal hárlosi. Örvar blóðflæði og styrkir Kéastase Genesis línan inniheldur meðal annars koffín sem örvar blóðfæði ásamt Edelvwess frumum og Engiferrót sem vernda gegng oxunarálagi og er bólgueyðandi og stykjandi. Lína samanstendur af sjampó, næringu, djúpnæringu og 6 vikna meðferðadropum sem notað er heima fyrir til að vinna á hárlosi og styrkja hár og hársvörð sem er það mikilvægasta í meðferðinni. Droparnir eru notaðir daglega og settir í hársvörðinn til að koma í veg fyrir að kollagen herðist og að hárið falli og mælum við með notkun á kvöldin fyrir svefn yfir 9 vikna tímabil. Einnig inniheldur línan hitavörn til að verja hárið sem er mjög mikilvægt við notkun hitatækja. Rannskóknardeild Kérastase sýndi þær niðurstöður að með því að meðhöndla hárlos og nota línuna saman voru 93.3 % þátttakenda sem fundu mikinn mun. Hárið brotnaði síður og hárlos varð minna. Þéttara hár og aukin fylling Margar konur upplifa einnig þegar hárlos hefur minnkað að hárið er ekki eins þykkt og er frekar þunnt og mælir Fríða Rut þá með Densifique línunni og meðferðinni í þeirri línu í framhaldi ef þess þarf til að öðlast þéttara hár þar sem hún inniheldur Stemoxydine 5% sem eykur fyllingu hársins. Minna hárlos eftir sex vikna notkun L´Oréal Professional Aminexil línan er notuð í klínískum meðferðum og notast við virk efni eins og Aminiexil sem kemur í veg fyrir að kollagen herðist við hársekkinn ásamt Omega 6, B5 vítamíni og PP (níansín) sem nærir hársekkina og hársvörðinn. Línan er prófuð og niðurstöður rannsókna sýndu að eftir 6 vikna notkun hafði hárlos minnkað og ný hár myndast. L´Oréal Professional sérhæfir sig einnig meðferðum gegn viðkæmum hársverði, bólgum og ertingu. En bæði merkin byggja vörur sínar á klínískum rannsóknum með rannsókna miðuðum innihlaldsefnum fyrir sértæk hársvaraðarvandarmál. Bæði merkin mæla einnig með samfelldri notkun í 3 mánuði fyrir bestu niðurstöðuna. Vítamín sem örva hárvöxt Mikilvægt er að taka inn vítamín og steinefni sem örva hárvöxt. Eitt af miklvægasta sem hárið þarf er bíotín til að halda bæði húð og hári heilbrigðu en bíótín er þekkt fyrir að örva hárvöxt segir Fríða. Þá er kísill mikilvægt steinefni fyrir hárið og einnig hafa Kollagen duftblöndur reynst vel. Fitusýrur fyrirbyggja þurrk bæði í hársverði og hárinu sjálfu og B-vítamín eru mikilvæg til að halda hárvexti og hári heilbrigðu. Járn er nauðsynlegt ásamt D vítamínii, B12 og Sink.„Við hárlosi mæli ég með innstöku á hárvítamíni frá UkHair sem inniheldir hátt hlutfall af biotin eða 5000 (5mg) ásamt samsetningu vítamína, fólinsýru, Sink og fleira sem þarf til að stuðla að heilbrigðu hári." „Læknar geta gert blóðprufu til að athuga hvort hormón, vítamín eða sjúkdómar gætu verið að orsaka hárlos og í sumum tilvikum eru gefin lyf eins og Minoxidil eða þér ávísað til húðsjúkdómalæknis. Bati við hárlosi krefst ekki bara meðferðar – heldur þolinmæði og mildi ásamt trú á ferlið þar sem í flestum tilvikum er þetta tímabundið ástand," segir Fríða Rut að lokum.
Mest lesið 50+: Þegar börnin búa enn heima hátt í þrítugt Áskorun Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Lífið Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Lífið Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Lífið 90% þeirra sem upplifa hárlos meðhöndla það ekki - það er þó hægt Lífið samstarf Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat Lífið Öðruvísi líf: „Veistu Hrund, þú ert eiginlega eins og Forrest Gump“ Áskorun Trúlofuðu sig á sama stað og þau byrjuðu saman Tónlist Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu Lífið Barnahátíðin Kátt snýr aftur Lífið Fleiri fréttir 90% þeirra sem upplifa hárlos meðhöndla það ekki - það er þó hægt Bylgjulestin verður í Hallormsstaðaskógi á laugardag Taktu þátt í sumarbókaviku á Bylgjunni og Vísi Aukasýningu bætt við á vinsælustu ABBA sýningu heims Iðnaðarmaður ársins fer í frí – sjáumst að ári! Bylgjulestin tók þátt í Bíladögum - myndaveisla Myndband við Þjóðhátíðarlagið frumsýnt á Vísi Iðnaðarmaður ársins hlustar á IceGuys til að koma sér í stuð Bylgjulestin verður í stuði á Bíladögum á Akureyri Myndaveisla frá Hveragerði þar sem Bylgjulestin var í beinni Ferð þú til Ástralíu með Bondi Sands og KILROY? Stálheppinn viðskiptavinur N1 vann frítt flug í heilt ár með PLAY Einn heppinn vinnur frítt flug í heilt ár með PLAY Bylgjulestin brunar af stað inn í sumarið Vinsælasta ABBA sýning heims kemur til Íslands Unga fólkið sækir í svissnesk TAG Heuer A Country Night in Nashville kemur í Hörpu Orsakir flösu og áhrifarík meðferð „Það er alls ekki í tísku að brenna“ Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorlákur er kominn í úrslit Heilög tvenna fyrir hlauparann! Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina Iðnaðarmaður ársins 2025 - Máni er kominn í úrslit Bakið er hætt að hefna sín Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorleifur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Eyjólfur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 – Róbert er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þór er kominn í úrslit Með andlit sem fleiri en bara mæður þeirra geta elskað Iðnaðarmaður ársins 2025 - Elsa er komin í úrslit Sjá meira