Sjáðu allan þáttinn um Norðurálsmótið Sindri Sverrisson skrifar 27. júní 2025 10:32 Þessir kátu Skagastrákar voru á heimavelli á Norðurálsmótinu. Sýn Sport Gleðin var við völd á Norðurálsmótinu á Akranesi, þar sem strákar og stelpur í 7. og 8. flokki skemmtu sér í fótbolta. Andri Már Eggertsson var á svæðinu og ræddi við krakkana í nýjasta þætti Sumarmótanna sem nú má sjá á Vísi.
Þátturinn var sýndur á Sýn Sport í gærkvöld og nú má sjá hann í heild hér að neðan eða í efnisveitunni Sýn+ þar sem einnig má finna fyrri þætti. Klippa: Norðurálsmótið á Akranesi 2025 Norðurálsmótið fagnaði fjörutíu ára afmæli í ár. Gleðin hófst á þjóðhátíðardaginn þegar krakkarnir í 8. flokki fengu smjörþefinn af stóra mótinu með því að spila á eins dags móti. Í þeim hópi voru nokkrir hressir KR-ingar sem höfðu ýmislegt að segja við Andra: „Á ég að segja þér eitt? Einu sinni vann ég 16-0 á æfingu,“ sagði einn. „Veistu hvað, ég var að skora eitt mark,“ bætti annar við. „Og ég var að reyna að skora en ég gat það ekki,“ sagði sá þriðji. Krakkarnir í 7. flokki tóku svo við og spiluðu á þriggja daga gistimóti þar sem stjörnur framtíðarinnar léku listir sínar í vöggu fótboltans á Akranesi. Ætla má að fjöldi fólks í bænum hafi tvöfaldast á meðan á mótinu stóð en allt gekk vel og þó að veðrið hafi sett smástrik í reikninginn nutu krakkarnir sín í botn, hvort sem var á vellinum, í mat í íþróttamiðstöðinni eða á kvöldskemmtun.
Sumarmótin Akranes Mest lesið Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Fótbolti Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Fótbolti Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Íslenski boltinn Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn „Ég er svo lélegur í golfi“ Golf Langar að taka pásu frá landsliðinu Fótbolti Myndavélin hreyfðist ekki og því engin snerting Fótbolti Fleiri fréttir Þórdís fer frá Þrótti til Breiðabliks Völdu besta og efnilegasta leikmanninn ásamt úrvalsliði deildarinnar Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni „Leikurinn sýnir að við erum að þróast í rétta átt“ „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Uppgjörið: FH - Valur 2-0 | Gils gerði gæfumuninn í langþráðum sigri FH-liðsins Magnaður Sveinn Margeir: „Við eigum fullt inni“ Uppgjörið: KA - ÍA 3-2 | Víti í blálokin og loksins vann KA leik „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Uppgjörið: KR - ÍBV 5-2 | Eyjamenn sáu ekki til sólar í rokinu vestur í bæ Uppgjörið: Fram - Þór 6-1 | Framarar settu upp sýningu „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Tindastóll mætti ekki til leiks Tíu ÍR-ingar héldu Þrótturum frá toppsætinu Uppgjörið: Valur - Stjarnan 1-1 - Valskonur enduðu sigurgöngu Stjörnunnar Sjáðu ótrúlega fimmu Ídu Marínar og Fram vinna meistarana Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Árni Vilhjálms í Stjörnuna Uppgjör: Þór/KA - Grindavík/Njarðvík 1-0. Margrét með sigurmarkið í upphafi leiks Botnlið Fram vann óvæntan sigur á toppliði Blika Eyjakonur með fyrsta sigurinn í tvo mánuði Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Elías Már sárþjáður og fór af velli Sjá meira