Íslendingar geta verið sóðar Heitir pottar 28. júlí 2025 09:42 Of margir Íslendingar eru ekki duglegir að hreinsa heita potta og halda vatninu hreinu. Þetta getur stafað af vanþekkingu, sérstaklega hjá þeim sem nota rafmagnspotta eða leigja sumarhús með heitum pottum. Kristján Berg hjá Heitum pottum fræðir lesendur Vísis um hreinlæti heitra potta. Heiti potturinn er uppspretta vellíðunar fyrir marga – staður til slökunar og samveru. En margir eru þó ekki nægilega duglegir að hreinsa heita potta og halda vatninu hreinu. Þetta getur stafað af vanþekkingu, sérstaklega hjá þeim sem nota rafmagnspotta eða leigja sumarhús með heitum pottum. Potturinn þarfnast nefnilega reglulegrar umhirðu, og ekki síst vatnið í honum. „
Ef þú átt rafmagnspott, þá geturðu haldið honum hreinum með aðeins tveggja til þriggja mínútna vikulegu viðhaldi,“ segir Kristján Berg Ásgeirsson, eigandi fyrirtækisins Heitir pottar. „Við sjáum það aftur og aftur – margir gera sér ekki grein fyrir því hversu lítið þarf til að vatnið í pottinum verði hreint og gott,“ segir Kristján Berg Ásgeirsson, eigandi fyrirtækisins Heitir pottar. Hann hefur undanfarin ár frætt viðskiptavini um rétt viðhald og umhirðu og segir að vanþekking sé algengasta ástæðan fyrir óhreinum pottum. „Í mörgum tilfellum grassera bakteríur í pottunum vegna þess að fólk kann ekki að hugsa rétt um þá,“ segir hann. Hann nefnir sérstaklega rafmagnspotta og hitaveitupotta sem algengar gerðir sem krefjast ólíkrar umhirðu – en í báðum tilvikum þarf að hugsa um hreinsun, pH-gildi og rétt notkun efna. „Það sem fólk tekur ekki alltaf eftir eru hvítar flygsur í vatninu. Þetta er oft húðfita og annað rusl sem safnast upp í lagnirnar – og hver vill sitja í því?,“ spyr hann og bætir við að djúphreinsun með sérstökum lagnahreinsi eigi að fara fram a.m.k. einu sinni á ári. „Ef þú átt rafmagnspott, þá geturðu haldið honum hreinum með aðeins tveggja til þriggja mínútna vikulegu viðhaldi,“ segir Kristján. „Það er hægt að nota pH-strimla til að mæla sýrustigið sem á að vera á bilinu 7,2–7,6. Síðan á að setja klórtöflur í flotholt og einu sinni í viku fer spa shock út í vatnið. Þetta er einfalt og tekur stuttan tíma.“ Hann mælir með að fólk venji sig á að sjá um pottinn alltaf sama dag vikunnar, til dæmis á laugardögum þegar flestir eru í fríi. „Það er ekkert öðruvísi en að þrífa bílinn – þú gerir það reglulega. Potturinn þarfnast þess líka.“ Í hitaveitupottum vill fólk oft sleppa hreinsiefnum að sögn Kristjáns og þá kemur slepjukennd áferð og vond lykt. „Ég hvet því fólk til að nota klórtöflur eða salttöflur í flotholti. Þar sem vatnið endurnýjast stöðugt þarf ekki að mæla sýrustigið, en engu að síður þarf að huga að hreinlæti. Það er einfaldara en fólk heldur. Ef þú notar réttu efni minnka þrifin um 80–90%.“ Núna eru komnir pottar á markað sem eru 98% sjálfvirkir. „Þannig að það er kominn sjálfvirkur sundlaugarvörður fyrir pottaeigandann,“ segir Kristján. „Tækninni hefur fleygt fram og við nýtum okkur nýjustu tæknina sem er saltvatnspottar. Þeir eru útbúnir nema sem nemur gæði vatnsins og senda svo upplýsingar í gegnum app.“ Í appinu er hægt að fylgjast með vatnsgæðum og hlýða þeim leiðbeiningum pottaeigandi fær þar. „Þetta getur ekki verið einfaldara. Það fæðist enginn sem sundlaugarvörður og því gott að nýta sér þessa frábæru tækni sem er komin fram, en við höfum selt saltvatnspotta frá árinu 2008.“ Heitir pottar er fyrst og fremst þjónustufyrirtæki segir Kristján. „Margir halda að helsta hlutverk starfsfólks okkar sé að selja en aðal hlutverk okkar er að fræða fólk og hjálpa því að njóta. Við bjóðum upp á myndbönd, leiðbeiningar og tölvupóststuðning. Við svörum öllum spurningum og engin spurning er of vitlaus. Þegar við seljum pott fylgja með skref-fyrir-skref leiðbeiningar. Eftir nokkra mánuði hringjum við aftur og spyrjum: Hvernig gengur með pottinn? Því auðvitað viljum við að fólk njóti pottanna á réttan hátt.“ Heitir pottar bjóða einnig upp á lausnir fyrir þá sem þola illa klór eða eru með exem. „Það eru til fjölbreytt efni og búnaður sem hægt er að aðlaga að þörfum hvers og eins,“ segir Kristján. „Fólk má endilega hafa samband, við sendum hreinsiefni heim næsta virka dag og það má svo auðvitað alltaf koma við eða hringja.“ Hann segir Íslendinga elska að hoppa í heita potta. „En við þurfum líka að muna að það þarf að hugsa um þá. Rétt viðhald skilar sér margfalt, í lengra lífi pottsins, betra vatni og meiri vellíðan.“
Heilsa Mest lesið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Lífið Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd Bíó og sjónvarp Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Fleiri fréttir Kaldir pottar eru orðnir hluti af daglegri rútínu margra landsmanna Nespresso 40 ára: Afmælishátíð með vinningum að verðmæti milljón króna Golfvöllurinn í Eyjum tilnefndur sem sá besti í Evrópu Opnir fræðslufundir fyrir almenning um lífeyrismál Situr þú eins og rækja? Góð líkamsstaða byrjar á réttum stól Skóspark og Krakkadagar hjá Icewear: Gengið inn í vorið E.T. sýnd við lifandi undirleik Sinfó í Hörpu Infraklefar og sánur eru heilsutrendið sem allir eru að tala um Hugarafl er staður þar sem karlmenn fella niður grímuna Tryggðu þér sæti í sólinni áður en sumarið fyllist Pungrakvélin hefur slegið í gegn hjá Chad Grooming Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Íslenskt heiðalamb frá Kjarnafæði í nýjum páskaumbúðum Galdurinn á bak við hinn fullkomna ljóma Frískaðu upp á heimilið með vinsælustu vorlitum Slippfélagsins Skaftfellsk perla fær alþjóðlega viðurkenningu Þessi smávægilega breyting sem kom jafnvægi á líðan Icewear leggur áherslu á strangari gæðakröfur en reglugerðir kveða á um „Ég vildi að ég hefði vitað af ykkur fyrr” ,,Þetta krem bjargaði húðinni á barninu okkar‘‘ Tannheilsa ungmenna veldur áhyggjum Góð tannhirða hefur bein áhrif á almenna heilsu líkamans Fermingarbörn virðast helst langa í raftæki og peninga Apple vörur eru fullkomin fermingargjöf Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Íslandsmeistaramót í spili alþýðunnar Ólsen ólsen Íslensk hönnun og vönduð efni skipta máli í upplifun gesta Þurrt hár og hvað er hægt að gera? Nýtt app frá Hreyfli komið í loftið Fjórar evrópskar perlur sem fullkomna vorferðina Sjá meira