Forsætisráðherra segir að átökin gætu færst nær stríði Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 26. júlí 2025 10:16 Nærri 140 þúsund hafa þurft að flýja heimili sín á Taílandi og nærri 35 þúsund í Kambódíu. AP Ráðamenn í Kambódíu hafa gert gert ákall eftir tafarlausu vopnahléi eftir að til átaka kom á landamærum Kambódíu og Taílands. Forsætisráðherra Taílands varar við því að átökin gætu færst nær stríði.
Að minnsta kosti 32, bæði hermenn og óbreyttir borgarar, eru fallnir í átökunum og nærri 200 þúsund hafa þurft að flýja heimili sín. Barist er á tólf vígstöðvum víðs vegar um landamærin. Kambódíumönnum og Taílendingum kemur ekki saman um hvor hliðin hóf átökin en Taílendingar saka Kambódíumenm um að hafa byrjað átökin með því að hafa skotið eldflaugum á þorp innan landamæra Taílands og á spítala í grenndinni á fimmtudag. Þá saka Taílendingar Kambódíumenn um að beina skotum sínum að óbryettum borgurum. Kambódíumenn saka Taílendinga sömuleiðis um að hafa skotið fyrst. Nú síðast hafa Kambódíumenn sakað Taílendinga um að beita klasasprengjum, sem eru bannaðar víða í heiminum vegna áhrifanna sem þær kunna að hafa á byggð og almenna borgara. Taíland hefur ekki svarað ásökununum. BBC hefur eftir Chhea Keo, sendiherra Kambódíu gagnvart Sameinuðu þjóðunum að kambódíska ríkið bæði um skilyrðislaust vopnahlé. Þá segir Maris Sangiampongsa utanríkisráðherra Taílands að Kambódía þyrfti að sýna velvild ef vopnahlésviðræður ættu fram að ganga. Reuters hefur eftir honum að engin þörf sé á að önnur ríki grípi inn í. Phumtham Wechayachai starfandi forsætisráðherra Taílands varaði í gær við því að átökin gætu færst nær stríði. Hermenn beiti þungavopnum og barist sé á tólf vígstöðvum.
Kambódía Taíland Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Erlent Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Innlent Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Innlent Fleiri fréttir Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Sjá meira