Tónlist

Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Gústi B og félagar troða upp á Þjóðhátíð.
Gústi B og félagar troða upp á Þjóðhátíð. SAMSETT

Þríeykið á bak við hlaðvarpið Veisluna kemur fram á stóra sviðinu á Þjóðhátíð í ár. Það eru þeir Gústi B, Arnór Snær og Siggi Bond en vinirnir eru gríðarlega spenntir og segja mikla vinnu hafa farið í undirbúning atriðisins sem er á dagskrá á laugardagskvöldinu.

„Við erum búnir að setja saman lagalista með bestu lögum heims. Þau eru bæði íslensk og erlend og svo snýst þetta um að blanda þeim saman og búa til gott flæði,“ segir Gústi fullur tilhlökkunar.

Draumur sem rættist

„Það er algjör draumur að fá að spila á stóra sviðinu á Þjóðhátíð. 

Fréttirnar gerðu mömmu svo sannarlega stolta. Ég á nokkur óskalög í settinu en lagið sem ég barðist mest fyrir er Hringdu í mig með Friðriki Dór,“ 

segir Arnór Snær sem kom nýr inn í hlaðvarpið í vetur.

Efni úr hlaðvarpinu hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum en í þáttunum ræða vinirnir allt milli himins og jarðar.

@gustib_1 heilaleikfimi í þrjú ár 😭😭 #veislan ♬ original sound - Gústi B

Búnir að hringja út alla greiða

Það er óalgengt að þrír einstaklingar sem ekki eru starfandi tónlistarmenn stígi saman á stóra sviðið í Herjólfsdal en strákarnir láta loddaralíðan ekki taka yfir. 

„Ég er viss um að margir sem renna yfir dagskrána hafi ekki hugmynd um það sem við ætlum að bjóða upp á. En þetta er ekki beint flókið. Við ætlum að spila frábær lög og halda fólkinu í stuði,“ segir Sigurður.

Gústi segir vinina ekki verða eina. 

„Það er fyndið að við séum að fara úr hlaðvarpsstúdíóinu í kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið í Herjólfsdal og við erum fyrst og fremst þakklátir fyrir þetta einstaka tækifæri. 

Við erum búnir að hringja út alla greiða sem við áttum inni og fáum fullt af leynigestum til að taka lagið í settinu. Þetta verður veisla.“


Tengdar fréttir

Gústi B leitar sér að vinnu

Ágúst Beinteinn Árnason, betur þekktur sem Gústi B, samfélagsmiðlastjarna og útvarpsmaður með meiru leitar sér nú að nýrri vinnu eftir að útvarpsþáttur hans Veislan var tekin af dagskrá FM957.

Gústi B fann ástina hjá Hafdísi Sól

Útvarps- og sjónvarpsmaðurinn Ágúst Beinteinn, jafnan þekktur sem Gústi B, er genginn út. Kærastan heitir Hafdís Sól, fyrrum fimleikadrottning og nemi í rekstrarverkfræði við Háskólann í Reykjavík. Sömuleiðis er hún besta vinkona Friðþóru kærustu súkkulaðistráksins Patriks Atlasonar, sem er besti vinur Gústa B. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.