Þrjár ráðnar til Krafts Atli Ísleifsson skrifar 3. september 2025 08:58 Eva Sigrún Guðjónsdóttir, Guðný Sara Birgisdóttir og Ragnhildur Þóra Hafsteinsdóttir. Kraftur Eva Sigrún Guðjónsdóttir, Guðný Sara Birgisdóttir og Ragnhildur Þóra Hafsteinsdóttir hafa verið ráðnar til Krafts, félags ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandenda þeirra.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Krafti. „Eva Sigrún mun gegna stöðu markaðs- og kynningarstjóra hjá Krafti. Hún er með MSc. í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum og býr yfir víðtækri reynslu af markaðs- og kynningarstarfi, meðal annars frá Háskólanum í Reykjavík þar sem hún hefur undanfarin ár sinnt vísindamiðlun og markaðsmálum. Hún hefur auk þess byggt upp vörumerki í kringum hlaðvarpið Bragðheimar og sinnt ýmsum verkefnum því tengdu. Eva mun stýra árlegri vitundarvakningu Krafts og styðja við vaxandi ímynd og kynningarstarfsemi félagsins. Guðný Sara er fjáröflunarstjóri félagsins. Hún er með bakgrunn í skapandi greinum og með meistarapróf í hönnun og kennslufræðum. Hún hefur sinnt ýmsum störfum og verkefnastjórnun í gegnum árin, sérstaklega í þágu barna og ungmenna á ólíkum menningarstofnunum. Guðný vill virkja samfélagið í takt við sterka sýn Krafts um að styðja eins vel og hægt er við ungt krabbameinsgreint fólk og aðstandendur þeirra. Hún mun nýta sína þekkingu til að styrkja við árangursríka fjáröflun félagsins með hinum ýmsu viðburðum og aðgerðum Ragnhildur Þóra mun gegna stöðu fræðslu- og hagsmunastjóra og kemur til Krafts með mikla reynslu úr atvinnulífinu. Hún starfaði síðast sem deildarstjóri á skammtímaheimili á vegum barnaverndar Reykjavíkur. Hún er með MSc í forystu og stjórnun. Ragnhildur mun sinna hagsmunagæslu, fræðslu og stuðningi við félagsmenn og aðstandendur þeirra og kemur til félagsins með dýrmæta reynslu af því að hafa sigrast á krabbameini. Haft er eftir Sólveigu Ásu Tryggvadóttur, framkvæmdastjóra Krafts að þær Eva, Guðný og Ragnhildur muni leiða lykilverkefni félagsins á sviði markaðs, fjáröflunar og fræðslu. „Áhuginn á störfunum var mikill en alls bárust um 160 umsóknir. Við erum þakklát fyrir þennan áhuga og stolt af því að fá þessar kraftmiklu konur til liðs við okkur,“ segir Sólveig Ása.
Vistaskipti Krabbamein Félagasamtök Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira