Leitað að manni með öxi Hólmfríður Gísladóttir skrifar 8. september 2025 06:24 Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í nótt. Vísir/Vilhelm Lögregla rannsakar nú mál þar sem tvö ungmenni eru sögð hafa veist að því þriðja, slegið með áhaldi og rænt. Atvikið er sagt hafa átt sér stað við verslunarmiðstöð.
Frá þessu er greint í yfirliti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu yfir verkefni gærkvöldsins og næturinnar. Þar greinir einnig frá tilkynningu um einstakling sem var sagður vera að veitast að fólki við skemmtistað, vopnaður öxi. Hann var farinn þegar lögregla mætti á vettvang. Leit var gerð að viðkomandi en án árangurs. Lögregla var einnig kölluð til vegna líkamsárásar, þar sem áverkar voru minniháttar. Það mál er í rannsókn. Tveir einstaklingar voru handteknir grunaðir um húsbrot en báðir voru ofurölvi og vistaðir í fangaklefa. Þeir eru grunaðir um að hafa framið annað húsbrot fyrr um daginn. Þá var maður handtekinn eftir að hafa haldið vöku fyrir fólki með öskrum og látum, ber að ofan og skólaus. Hann var undir áhrifum, ósamvinnufús og viðskotaillur, samkvæmt yfirliti lögreglu. Lögregla sinnti að auki útkalli vegna þjófnaðar í matvöruverslun og var kölluð til vegna mögulegs fjárbrots, þar sem einstaklingur er grunaður um að hafa notað greiðslukort annars án leyfis. Hún rannsakar einnig þjófnað á skráningarnúmerum bifreiðar og skemmdarverk á „ferðavögnum“.
Lögreglumál Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Rektor Cornell-háskóla rífur þögnina Erlent Fleiri fréttir Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Sjá meira