„Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 22. september 2025 21:13 Bára Atladóttir hönnuður og eigandi Brá verslunar. Vísir/Lýður Eigendur fyrirtækja eru að drukkna í beiðnum frá fólki sem vill fá allt fyrir ekkert að sögn verslunareiganda. Ákveðin betlmenning hafi hreiðrar um sig sem alltof mikill tími fari í að sinna.
Bára Atladóttir eigandi Brá verslunar vakti athygli á dögunum á því á samfélagsmiðlum að stór hluti starfs hennar færi í að svara beiðnum frá fólki um að fá eitthvað gefins. „Ég er rosalega mikið að svara betlpóstum frá einstaklingum sem langar að fá eitthvað frítt fyrir tagg á samfélagsmiðlum í staðinn. Ég er ekki að tala um áhrifavalda. Heldur meðal- Jón eða Gunnu sem langar kannski að gefa vinkonu sinni litla gjöf sem er að fara með viðkomandi í sumarbústað. Ég fæ ekkert í staðinn nema þetta tagg frá einhverri Gunnu sem er kannski með 300 fylgjendur,“ segir Bára. Allar slíkar beiðnir hafi eitt ákveðið einkenni. „Fólk heldur að það geti fengið allt fyrir ekkert og það er gallinn“ segir hún. Stór hluti starfsins fer í að svara betlurum Bára kveðst ekki bregðast við slíkum óskum. Ég hef ekki gefið einn einasta hlut síðustu 4 ár og það er af því ég fæ aldrei auglýsinguna sem ég vil fá út úr gjöfinni. Ég myndi segja að um þrjátíu prósent af minni vinnu fari í að lesa póstanna og svara þeim kurteisislega. Í hverri viku eru þetta 30-50 beiðnir og ég svara þeim öllum. Því ef ég geri það ekki á ég á hættu að vera úthúðað á samfélagsmiðlum.,“ segir hún. Hún kveðst hafa fengið mikil viðbrögð við færslunni þar sem hún vakti athygli á málinu. „Eftir að ég setti þetta inn á samfélagsmiðla fylltist pósthólfið mitt þar sem aðrir fyrirtækjaeigendur lýsa sömu stöðu eða hvernig þeir séu líka að drukkna. Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt,“ segir hún. Aðspurð hvort hún vilji nota tækifærið og senda fólki skilaboð svarar Bára. „ Já viljið þið hætta.“
Verslun Samfélagsmiðlar Mest lesið Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Sjá meira