Fiorentina enn án sigurs eftir jafntefli í Toskana-slagnum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. september 2025 15:30 Albert Guðmundsson var í strangri gæslu varnarmanna Pisa. getty/Image Photo Agency Lið Alberts Guðmundssonar, Fiorentina, hefur farið illa af stað í ítölsku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Í dag gerði liðið markalaust jafntefli við nýliða Pisa í Toskana-slagnum. Albert hóf leikinn í fremstu víglínu Fiorentina ásamt ítalska landsliðsmanninum Moise Kean. Þeim tókst ekki að sigrast á vörn Pisa í frekar lokuðum leik. Liðin áttu aðeins samtals þrjú skot á markið í leiknum. Albert var tekinn af velli á 74. mínútu. Hann hefur leikið þrjá leiki í ítölsku úrvalsdeildinni og lagt upp eitt mark. Fiorentina er aðeins með þrjú stig eftir fyrstu fimm leiki sína í ítölsku úrvalsdeildinni en þetta er aðeins í fjórða sinn í sögu félagsins sem það gerist. Pisa er með tvö stig í nítjánda og næstneðsta sæti deildarinnar. Liðið vann sér sæti í efstu deild síðasta vor, eftir 34 ára fjarveru. Næsti leikur Fiorentina er gegn Sigma Olomouc í Sambandsdeild Evrópu á fimmtudaginn. Næsti deildarleikur er svo gegn Roma á heimavelli á sunnudaginn kemur. Ítalski boltinn