Eldhúspartý KVIK er á laugardaginn Rafha 3. október 2025 08:44 Í tilefni af endurhönnuðum sýningarsal býður Rafha til allsherjar hönnunarveislu á Suðurlandsbraut 16 á laugardaginn Laugardaginn 4. október frumsýnir KVIK nýja eldhúslínu hannaða af Rikke Frost ásamt því að kynna fjölmargar aðrar spennandi nýjungar.
Í tilefni af endurhönnuðum sýningarsal er öllum sem dreymir um nýtt eldhús og öðrum forvitnum boðið til einnar allsherjar hönnunarveislu. Matgæðingurinn Jói Fel mætir á svæðið og töfrar fram girnilega rétti sem gestir fá að smakka á og Fín Vín sér svo um að væta kverkarnar með vínkynningu. Allir kátir krakkar fá krapís úr nýju Ninja Slush Ice vélinni. Margrét Þórhallsdóttir sölustjóri KVIK í Reykjavík ALIGN frumsýnd Hinn margverðlaunaði hönnuður Rikke Frost fékk þá áskorun að skapa algjörlega einstakt útlit fyrir nýjustu eldhúslínuna frá KVIK. Útkoman er ALIGN þar sem fágað samspil fegurðar og þæginda, láréttar línur og náttúrulegir tónar eru í aðalhlutverki. Aligne línan hefur fágað yfirbragð Margrét Þórhallsdóttir sölustjóri KVIK í Reykjavík segir að ALIGN sé: Djarft útspil sem vekur strax athygli fyrir frumleika og nýja nálgun. Rikke Frost er hönnuðurinn á bak við Aligne línuna KVIK húsgögn líta dagsins ljós Í ár kynnir KVIK jafnframt til leiks húsgagnalínu sem skapar fullkomið samspil milli eldhúss og borðstofu. Margrét segir að núna sé hægt að fá allt í stíl, eldhús, stóla og borðstofuborð, eitthvað sem margir hafa óskað eftir. Sæktu innblástur fyrir heimilið þitt með COMPOSE KVIK kynnir jafnframt COMPOSE línuna sem hagkvæman valkost. COMPOSE einkennist af tímalausri hönnun og fæst í mismunandi viðarlitum ásamt 6 öðrum fallegum mjúkum litatónum. Fjölmargar útfærslur og litir af COMPOSE bjóða upp á endalausa möguleika og þannig hægt að aðlaga að þörfum og smekk hvers og eins. CELLENO sígild sveitasæla Fyrir þá sem kjósa klassíska hönnun kemur CELLENO sterk inn. „CELLENO hentar fullkomnlega fyrir þá sem elska skandínavískan sveitastíl. Hún fæst bæði í Arizona Beige sem er í miklu uppáhaldi, en einnig í æðislega flottum grænum lit sem nýtur líka vinsælda“ segir Margrét. Hönnuðir taka vel á móti þér Frá klukkan 11 til 16 verða hönnuðir KVIK á staðnum til að gefa góð ráð. Allir sem bóka tíma í ráðgjöf fá óvæntan glaðning frá Meraki og fá sérstakan afsláttarmiða sem veitir 22% afslátt af innréttingum sem eru pantaðar fyrir 18. október. „Við vonumst til að sem flestir kíki í heimsókn, njóti veitinga og fái nýjar hugmyndir fyrir heimilið“ segir Margrét að lokum.
Hús og heimili Tíska og hönnun Matur Mest lesið Best að geta elt draumana saman Lífið Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Bíó og sjónvarp Guðni og gellurnar mættu í kokteilboð Lífið Ólga vegna brotthvarfs Sölku Sólar: „Þetta er vond ákvörðun“ Lífið Laufey og Collab í eina sæng Lífið Er Rothschild-ættin að sölsa undir sig allan heiminn? Lífið Stjörnulífið: Hilmir Snær og Vala Kristín kósí í Laugum Lífið Ástrós Trausta og Adam kveðja Fossvoginn Lífið Minnast Davíðs: Hugrakkur, hnyttinn og stór í sniðum Lífið Björk glæsileg í indverskri hönnun Tíska og hönnun Fleiri fréttir Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira