Markaskorarinn Mount vonast til að sigur dagsins sé vendipunkturinn Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 4. október 2025 17:31 Mount skoraði annað marka Man United í dag. EPA/PETER POWELL „Þetta var spennandi leikur, við nutum hans. Frammistaðan í fyrri hálfleik, að vera 2-0 yfir, hjálpaði okkur gríðarlega,“ sagði Mason Mount, annar af markaskorurum Rauðu djöflanna, eftir 2-0 sigur liðsins á Svörtu köttunum í Sunderland.
Man United vann óvæntan 2-0 sigur á Sunderland í ensku úrvalsdeildinni. Stigin voru mikilvæg fyrir Ruben Amorim og lærisveina hans eftir slæma byrjun á tímabilinu. „Í síðari hálfleik vildum við halda áfram að sækja en úrslitin voru það mikilvægasta. Ánægður með þrjú stig.“ „Mjög ánægður, hef ekki séð það aftur. Það mikilvægasta var að fá þrjú stig eftir erfiða tvo leiki. Við erum spenntir fyrir næsta leik og það hjálpar Benjamin Šeško að vera á skotskónum. Hann var virkilega öflugur í dag og ég er mjög ánægður fyrir hans hönd sem og Senne Lammens.“ „Við vorum beittir í byrjun, byrjuðum leikinn hratt. Ef við byrjum vel á heimavelli getum við tekið stjórnina og skorað mörk. Í síðari hálfleik var þetta aðeins opnara og við þurfum að vinna í því. Við erum 100 prósent með stjóranum. Við höfum átt leiki þar sem úrslitin hafa stungið leikmenn, starfslið og stuðningsfólk.“ Er þetta eitthvað til að byggja ofan á? „Þetta þarf að vera það. Við héldum eftir Chelsea að það væri byrjunin á einhverju en svo förum við til Brentford og náum ekki í úrslit. Þetta byrjar í dag og við munum leggja hart að okkur í landsleikjahléinu. Við viljum vinna tvo leiki í röð, síðan þrjá í röð og í kjölfarið stefna á topp fjögur.“ Áður nefndur Lammens spilaði sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni og hélt marki sínu hreinu. „Það er mikilvægt að halda hreinu í ensku úrvalsdeildinni, það var virkilega mikilvægt að halda hreinu í síðari hálfleik í dag. Hann var svo öruggur þegar við vorum undir pressu. Það getur verið erfitt að spila sinn fyrsta leik en við vildum spila af samheldni og mér fannst við gera það í dag. Nú þurfum við að halda áfram að taka skref fram á við.“
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Staðfesta samning við Carrick: „Það er eitthvað töfrandi við Man. Utd“ Sjá meira