Setti stigamet í fyrsta heimaleiknum sínum í Síkinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. október 2025 11:00 Spænska körfuboltakonan Marta Hermida hefur skorað 79 stig og gefið sextán stoðsendingar í fyrstu tveimur leikjum sínum með Tindastól. @martahermida97's profile picture tindastollkarfa's profile picture tindastollkarfa Spænska körfuboltakonan Marta Hermida fór algjörlega á kostum í gærkvöldi þegar Tindastólsliðið landaði sínum fyrsta sigri í Bónus-deild kvenna í vetur.
Hermida kom til Tindastóls fyrir þetta tímabil og var þarna að spila sinn fyrsta heimaleik í Síkinu. Hún endaði á því að skora 49 stig og bæta stigamet kvennaliðs Tindastóls í efstu deild. Hermida hitti úr 19 af 20 vítaskotum sínum (95 prósent) og 13 af 27 skotum utan af velli (48 prósent). Þessi frábæra frammistaða hennar var algjör lykill að baki 95-92 sigri Tindastóls. Stigametið var áður í eigu Randi Brown sem var fyrir þennan leik eini leikmaður kvennaliðs Stólanna sem hafði náð að skora fjörutíu stig í leik. Brown skoraði 42 stig á útivelli á móti Hamar/Þór í nóvember í fyrra. Brown átti einnig stigamet Tindastólsleikmanns í Síkinu síðan hún skoraði 36 stig í heimaleik á móti Hamar/Þór í febrúar á þessu ári. Brown jafnaði þá met Audrey Codner frá árinu 1996. Nú á bæði metin og nóg af leikjum eftir á tímabilinu til þess að bæta það. Marta Hermida skoraði 30 stig á útivelli á móti Haukum í fyrstu umferðinni og er því komin með 79 stig eftir aðeins tvo leiki eða 39,5 stig að meðaltali í leik. Hún gaf einnig átta stoðsendingar í leiknum í gær. Stigamet karlaliðs Tindastóls er 54 stig og það á Valur Ingimundarson frá því í þríframlengdum leik á móti Haukum á Króknum í október 1988. Brynjar Þór Björnsson og Cedric Isom eru þeir sem hafa skorað mest í leik sem fór ekki í framlengingu eða 48 stig hvor.
Bónus-deild kvenna Tindastóll Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira