Fundaði með rabbína til að biðjast afsökunar á gyðingaandúðinni Magnús Jochum Pálsson skrifar 7. nóvember 2025 11:27 Kanye West ásamt Pinto rabbína og túlki sem miðlaði málum. Rapparinn Kanye West fundaði með rabbínanum Yoshiayao Yosef Pinto til að biðjast afsökunar á fjandsamlegum ummælum sínum um gyðinga. West sagði það vera blessun að geta axlað ábyrgð.
West og Pinto funduðu saman á þriðjudag en plötusnúðurinn DJ Akademiks birti myndband af fundi þeirra á Instagram í gær. Þar sjást West og Pinto haldast í hendur og ræða saman gegnum túlk. Síðastliðinn þrjú ár hefur West ítrekað gerst sekur um hatursfull ummæli um gyðinga. Árið 2022 var honum úthýst af bæði Instagram og Twitter fyrir færslur sem hvöttu til ofbeldis gegn gyðingum. Fjöldi fyrirtækja skar í kjölfarið á tengsl við hann. Rapparinn sagðist árið 2023 ekki lengur hata gyðinga vegna leiks Jonah Hill í grínmyndinnni 21 Jump Street. Í lok sama árs baðst hann afsökunar á ummælum sínum á hebresku og vonaðist eftir fyrirgefningu. Fyrr á þessu ár dró hann svo í land með það, sagðist vera nasisti sem elskaði Adolf Hitler, sagði gyðingahatur bull sem gyðingar bjuggu til og lýsti því yfir að hann ætlaði aldrei aftur að biðjast afsökunar á ummælum sínum. Eins og barn sem er skilið eftir eitt heima Hann stóð þó ekki lengi við þá yfirlýsingu og hefur nú ákveðið að biðjast afsökunar á fyrri ummælum sínum. „Það er blessun að sitja hérna og axla ábyrgð,“ segir West í upphafi samtalsins. „Ég var að glíma við ýmis vandamál. Ég var líka að glíma við geðhvörf svo ég tók hugmyndir sem ég var með og gleymdi að vernda fólkið í kringum mig og sjálfan mig. Svo ég vil axla ábyrgð.“ West líkti ástandi sínu síðan við það að skilja barn eftir eitt heima. „Það er eins og þú hefðir farið úr húsi og skilið krakkann eftir heima og krakkinn þinn rústað eldhúsinu, bílskúrnum og stofunni. Síðan þegar þú kemur aftur heim þá berð þú ábyrðina,“ sagði West. Hann ætlaði því að þrífa eldhúsið, stofuna og bílskúrinn og axla ábyrgð á fyrri ummælum sínum. Hann sagði jafnframt að þetta væru fyrstu skrefin í að byggja „sterka veggi“ sambands hans við samfélag gyðinga. View this post on Instagram A post shared by DJ Akademiks (@akademiks) Ekki skilgreindur af mistökum „Manneskja er ekki skilgreind af mistökum sínum heldur hvernig hún ákveður að bæta upp fyrir þau,“ svaraði Pinto gegnum túlk sinn. „Þetta er raunverulegur styrkur manns: Færnin til að snúa aftur, læra og byggja brýr ástar og friðar.“ Kanye West hefur ekki verið á mála hjá útgáfufyrirtæki síðan 2022 þegar samningur hans við UMG kláraðist. Platan Donda 2 kom út í vor og ætlaði hann að gefa út plötuna Bully í haust en hefur ítrekað þurft að seinka henni.
Mál Kanye West Bandaríkin Tónlist Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Fleiri fréttir Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Sjá meira