Skilaði Kommúnistaávarpinu hálfri öld of seint en sleppur við sekt Magnús Jochum Pálsson skrifar 26. nóvember 2025 12:17 Sólveig Guðrún, rektor MR, tók við Kommúnistaávarpinu frá Boga hálfri öld eftir að hann hafði fengið hana að láni. Bogi Ágústsson, fyrrverandi fréttamaður og stjórnarmaður í Hollvinafélagi Menntaskólans í Reykjavík, skilaði á stjórnarfundi félagsins bók sem hann hafði fengið lánaða frá Íþöku, bókhlöðu skólans, þegar hann var nemandi, rúmum fimmtíu árum fyrr.
Þetta kemur fram í færslu sem birtist á Facebook-síðu Menntaskólans í Reykjavík rétt fyrir hádegi. Bókin sem um ræðir var engin önnur en Kommúnistaávarpið eftir Karl Marx og Friedrich Engels, nánar tiltekið önnur útgáfa frá 1949. Rektor skólans, Sólveig Guðrún Hannesdóttir, veitti bókinni viðtöku og felldi í leiðinni niður áfallnar sektir á bókina. Sólveig, Bogi, Marx og Kommúnistaávarpið. Ekki kemur fram hvenær nákvæmlega Bogi fékk bókina að láni en hann útskrifaðist frá MR árið 1972 og hefur hún því verið í fórum hans í að minnsta kosti 53 ár og sennilega eitthvað lengur en það. Tilgangur Hollvinafélags Menntaskólans í Reykjavík er að efla tengsl fyrrum nemenda skólans og styðja við uppbyggingu skólans. Í tilefni af 180 ára afmælis skólans 2026 stendur félagið nú fyrir söfnun fyrir næsta bindi af Sögu Reykjavíkurskóla sem mun fjalla um skólalíf frá miðjum níunda áratug til skólavetursins 2016/2017. Þessi saga mun ekki rata þangað en kannski verður hún neðanmálsgrein í fjórða bindinu.
Skóla- og menntamál Bókasöfn Grín og gaman Reykjavík Framhaldsskólar Bókmenntir Mest lesið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi Lífið samstarf Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira