Töframaður fann Dimmu heila á húfi Magnús Jochum Pálsson skrifar 28. nóvember 2025 15:40 Það voru fagnaðarfundir þegar Jóhann fékk Dimmu aftur í hendurnar eftir að Einar Mikael hafði fundið hrafninn. Töframaðurinn Einar Mikael fann hrafninn Dimmu eftir að hún hafði verið týnd í þrjá daga. Fóstri Dimmu óttaðist að hrafninn hefði endað í gini tófu sem hafði komið sér upp greni í nágrenninu.
Vísir fjallaði í gær um hrafninn Dimmu sem hafði ekki komið heim til sín í nokkra daga. Jóhann Helgi Hlöðversson, sem hefur fóstrað Dimmu frá því hún var eins árs, óttaðist að tófa við Helluvatn hefði drepið hrafninn. Nú hefur komið í ljós að Dimma slapp við tófuna. „Gleðifréttir! Dimma er komin heim,“ skrifar Jóhann Helgi Hlöðversson í færslu sem hann birti upp úr þrjú í dag. Með færslunni fylgdi myndband af hressum hrafni og fegnum fóstra hans. Einar Mikael kann að láta hluti hverfa og greinilega finna hrafna líka. „Fékk símtal frá vini mínum, Einari Mikael töframanni, sem hringdi í mig rétt í þessu og spurði: „Ert þú að leita að hrafni?“ Ég svaraði því játandi og spurði: „Hvar ert þú?,“ skrifar Jóhann í færslunni. „Fyrir framan búrið hennar,“ hafi Einar Mikael svarað. „Dimma var mjög glöð að hitta pabba sinn og þakkar kærlega öllum aðdáendum sínum sem hafa haft áhyggjur af velferð hennar. Dimma virðist í góðu standi en var ánægð með heilan pakka af SS pylsum,“ sagði Jóhann svo í færslunni. Hér að neðan má sjá myndbandið þar sem Jóhann og Dimma leika sér, hrafninn kroppar í tennur fóstra síns og fær heilan pakka af SS-pylsum að éta.
Dýr Fuglar Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Sahara Ray látin Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Hvað veistu um… Nylon? Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira