Það er ekki eitt.. það er allt.. Eiður Ragnarsson skrifar 4. desember 2025 09:32 Sjaldan eða aldrei hefur kynningu samgönguráðherra á nýrri samgönguáætlun verið beðið með jafnmikilli eftirvæntingu og í dag, 3. desember 2025, en áætlunin var kynnt undir fyrirsögninni „Ræsum vélarnar“ Gott og vel, það er búin að vera löng bið eftir Samgönguáætlun og því tímabært að „ræsa vélarnar“ í þeim skilningi, en eins og maðurinn sagði, „fyrr má nú rota en dauðrota“. Í byrjun er rétt að geta þess sem gott er, áætlunin er lögð fram og fjármagn til að framkvæma hana, í það minnsta fullyrða ráðherrar innviða, forsætis og fjármála að svo sé. Það er vel, það er bót frá því sem verið hefur áður, en það hefur oft skort fjármagn til að framkvæma þau plön sem lögð hafa verð fram. En þá er hrósinu lokið, að minnsta kosti af minni hálfu. Ef rennt er lauslega yfir þetta 110 blaðsíðna plagg þá er fátt í mínu nærumhvefi sem hægt er að vera sáttur við. Endurröðun jarðgangakosta er eitt. Það má endalaust takast á um hvað sé mikilvægast, en allar línur hafa legið í sömu átt undanfarin misseri og var sú átt undir Fjarðarheiði. Það er ljóst að það verður ekki, þrátt fyrir allan þann undirbúning sem farið hefur í þá framkvæmd og að þetta verk er því næst tilbúið til útboðs. En það er sko alls ekki allt. Ef rýnt er nánar í þessa áætlun og austursvæðið skoðað sérstaklega þá syrtir enn í, engin framkvæmd á næsta ári, af þeim fjölmörgu og bráðnauðsynlegum verkefnum sem beðið hafa í áraraðir, nema jú rúmur milljarður í að klára veg, sem á að opna nú í byrjun desember 2025 vegurinn um Hornafjarðarfjlót og litlar 300 milljónir til að laga væntanlega einn þriðja af 8 km löngum kafla á Jökuldalsvegi 8 km kafli sem á að framkvæma endurbætur á árunum 2026-2029 Ef skoðað er lengra fram í tímann, er ekkert verk hér fyrir austan sem klárast fyrir árslok 2030 nema áðurnefndur 8 km kafli á Jökuldal, ný brú á Sléttuá í Reyðarfirði, sjóvörn og færsla á þjóðvegi 1 við Jökulsá á Breiðamerkursandi, ný brú á Búlandsá og vegur við Teigarhorn, 2 km vegspotti við Stuðlagil og hringtorg á Egilsstöðum þetta eru nú allt og sumt næstu 5 árin. Öll önnur verkefni bíða fram yfir 2031 eða jafnvel framyfir 2036. Velflest ef ekki öll þau verkefni falla 100% að þeim áherslum sem tíundaðar eru í inngangi samgönguáætlunarinnar, sem eru meðal annars: Markmið um öruggar samgöngur.Markmið um greiðar samgöngur.Markmið um hagkvæmar samgöngur.Markmið um jákvæða byggðarþróun. Þessi verkefni eru eftirtalin og það er einfaldlega galið að þau muni öll með tölu ekki klárast fyrr en í fyrsta lagi árið 2035 eða eftir 10 ár og sum þeirra ekki fyrr en 2040 eða eftir 15 ár, því þarna erum við að tala um einstaklega hættulega vegi sem eru fyrir löngu úr sér gegnir og bera á engan hátt þá umferð sem fer um þá í dag, td. Axarvegur og Suðurfjarðavegur. En skoðum aðeins hvað vélarnar eru seinar í gang hér fyrir austan og hversu hæggengar þær eru, held að þær hljóti að vera bilaðar. Ný brú á Lagarfljót. (2036-2040)Suðurfjarðavegur milli Fárskrúðsfjarðar og Víkur. (2031-2035)Suðurfjarðavegur milli Víkur og Stöðvarfjarðar (2036-2040)Suðurfjarðavegur milli Stöðvarfjarðar Kambanes (2030-2035)Nýr vegur um Lón (2036-2040)Ný Brú á Jökulsá á Breiðamerkursandi (2031-2040)Þjóðvegur 1 milli Fagurhólsmýrar og Morsár (2031-2040)Ný tenging þjóðvegar 1 við Djúpavog (2031-2035)Axarvegur (2027 -2035) Síðan er hægt að nefna fleiri atriði til sögunar eins og að t.d. er ekki gert ráð fyrir nýrri brú á Jökulsá á Fjöllum fyrr en 2040 en sú brú ásamt 5 öðrum sem eru á þeim köflum sem nefndir hér að ofan eru allar með skerta burðargetu vegna aldurs og ástands. Austurlandi verður því enn um sínn í gíslingu vega og brúa með takmarkaða burðargetu. En þetta eru vegkaflarnir og þar með er ekki öll sagan sögð, því framlög til hafnbótasjóðs skerðast um 200 milljónir eftir árið 2026 og minka því framlög til hafnarmála umstalsvert á landsvísu og hlutur hafnarsjóða fer hækkandi, úr um það bil 40% upp í 60% af kostnaði við nýframkvæmdir, sem setur verulegt strik í allar áætlanir hafnarsjóða víða um land, meðal annars hér á Djúpavogi, þar sem áætlanir um nauðsynlega uppbyggingu munu að öllum líkindum frestast um óákveðin tíma. Það er ekki ásættanlega niðurstaða fyri landsfjórðung sem skapar jafnmiklar tekjur í þjóðarbúið og raun ber vitni, að sitja eftir með þessum hætti og ættu ráðamenn að sjá sóma sinn í því að endurskoða þetta plagg þannig austfirðingar sitji ekki eftir næstu 15 árin eins og allt stefnir í. Höfundur er íbúi á Djúpavogi og sérlegur áhugamaður um samgöngumál. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samgöngur Vegagerð Múlaþing Fjarðabyggð Samgönguáætlun Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar