Múlaþing

Múlaþing

Mannfjöldi: 5.232 (2025). Flatarmál: 10.671 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Egilsstaðir, Seyðisfjörður, Brúarás, Eiðar, Fellabær, Hallormsstaður, Djúpivogur, Borgarfjörður eystri.

Fréttamynd

Mikil­vægast með jarð­göngum að losna við hættu­legustu vegi

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra vísaði til náttúruvár þegar hann varði þá ákvörðun sína að setja Fljótagöng til Siglufjarðar í efsta sæti forgangslista næstu jarðganga. Á opnum fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í morgun bentu tveir þingmenn Norðausturkjördæmis hins vegar á að innan Fjallabyggðar væri jafnvel sterkari krafa um að fá ný Múlagöng vegna ítrekaðra snjóflóða í Ólafsfjarðarmúla.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Þau skipa lista Sjálf­stæðis­manna í Múla­þingi

Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Múlaþingi samþykkti í gær framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Berglind Harpa Svavarsdóttir mun áfram leiða listann, líkt og hún gerði fyrir kosningarnar 2022.

Innlent
Fréttamynd

Refsað fyrir að loka á konu og keyra yfir fætur hennar

Rútubílstjóri hjá ÍS-Travel hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa keyrt yfir konu með þeim afleiðingum að hún slasaðist alvarlega. Hann var dæmdur til að greiða konunni 1,3 milljónir króna í miskabætur.

Innlent
Fréttamynd

Svínar á Austur­landi með ó­heiðar­leika til að koma sínum jarð­göngum að

Það er eitt að vera ósammála um forgangsröðun jarðgangaverkefna. Það er allt annað að fara með rangar eða villandi upplýsingar til að réttlæta hana. Nú liggur fyrir að yfirlýsingar innviðaráðherra um tímaramma Fljótaganga standast ekki skoðun samkvæmt upplýsingum sem Austurfrétt og Rúv hafa undir höndum frá Vegagerðinni og ráðuneytinu.

Skoðun
Fréttamynd

Samgönguráð: Fyrir landið allt eða eitt kjör­dæmi?

Samkvæmt lögum nr. 30/2023 um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála skipar ráðherra samgönguráð. Hlutverk þess er að gera tillögu til ráðherra um samgönguáætlun, fimm ára aðgerðaáætlun hennar, stefnu og forgangsröðun framkvæmda að fengnum áherslum ráðherra.

Skoðun
Fréttamynd

Lindex lokað á Ís­landi

Öllum verslunum Lindex verður lokað í síðasta lagi 28. febrúar.  Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, eigandi Lindex, segir engan missa vinnuna við þessi tímamót og að það séu í gangi viðræður um þau verslunarrými sem Lindex hefur verið rekið í.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Vara við gróðureldum vegna flug­elda

Almannavarnanefnd Austurlands varar við því að mikil hætta sé á gróðureldum vegna flugelda. Snjóþekja sé víða lítil og gróður þurr en nokkuð stórir eldar kviknuðu í Neskaupstað, á Reyðarfirði, Breiðdalsvík og Djúpavogi kringum áramótin.

Innlent
Fréttamynd

Hér verða áramótabrennur á gaml­árs­dag 2025

Áramótin nálgast óðfluga og halda mörg sveitarfélög í þá hefð að hlaða í áramótabrennur. Vísir tók saman lista með helstu áramótabrennum landsins, listinn er ekki tæmandi og tekur fréttastofa fagnandi ábendingum um brennur sem ekki eru á lista.

Innlent
Fréttamynd

Aftur um Fjarðarheiðargöng

Fólk þekkir orðið söguna. Alþingi er búið að samþykkja Fjarðarheiðargöng. Ráðherra fer gegn vilja Alþingis og vinnur nýja samgönguáætlun, byggða að mestu á sandi. Því ef maður skoðar skýrslur sem liggja fyrir hjá Vegagerðinni og Stjórnarráðinu, m.a., þá hallast fjölmörg rök að gerð Fjarðarheiðarganga og gagnsemi þeirra fyrir samfélagið á Austurlandi.

Skoðun
Fréttamynd

Hitinn fór í 19,8 stig og desem­ber­metið slegið

Það blés hraustlega á landinu í gær og í nótt, sérstaklega um landið norðvestanvert. Sunnanáttinni fylgdu mikil hlýindi og í gærkvöldi var desemberhitametið slegið í hnjúkaþey á Seyðisfirði en þar komst hitinn í 19,8 stig.

Veður
Fréttamynd

Inn­viðir og öryggi í hættu í höndum ráð­herra

Innviðaráðherra ætlar ekki að verða við ósk Farice ehf, (Ríkisfyrirtæki sem á og rekur fjarskiptastrengi til útlanda) um að breyta fjarskiptalögum á þann veg að öryggi fjarskiptastrengja og helgunarsvæðis þeirra verði fulltryggt.

Skoðun