Carragher: „Ef Salah reynir að henda félaginu mínu undir rútuna veð ég í hann“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. desember 2025 07:01 Mohamed Salah verður ekki með Liverpool gegn Inter í Meistaradeild Evrópu í kvöld eftir ummæli hans að loknu jafnteflinu við Leeds United á laugardaginn. getty/Liverpool FC Jamie Carragher fór engum silkihönskum um Mohamed Salah í Monday Night Football á Sky Sports. Hann sagði að ummæli hans eftir leikinn við Leeds United hafi verið til skammar.
Liverpool gerði 3-3 jafntefli við nýliða Leeds í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn. Eftir leikinn ræddi Salah við fjölmiðla og honum lá mikið á hjarta. Hann sagðist hafa verið gerður að blóraböggli fyrir slæmt gengi liðsins, honum hafi verið hent undir rútuna og að samband hans og knattspyrnustjórans Arnes Slot væri brostið. Salah ferðaðist ekki með Liverpool-liðinu til Mílanó þar sem það mætir Inter í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Á blaðamannafundi fyrir leikinn sagðist Slot ekki hafa hugmynd um hvort Salah myndi spila aftur fyrir Liverpool. Carragher tjáði sig um ummæli Salahs í Monday Night Football í gær. Hann sagði að Egyptinn hefði skipulagt viðtalið fyrirfram. Reynir að valda sem mestum skaða „Mér fannst skömm að því sem hann gerði eftir leikinn. Sumir hafa talað um þetta sem útspil manns í uppnámi en ég held að svo hafi ekki verið,“ sagði Carragher. Jamie Carragher var ekki hrifinn af upphlaupi Salahs eftir leikinn gegn Leeds.getty/MB Media „Í hvert skipti sem Salah fer í viðtal eftir leiki, sem hann hefur gert fjórum sinnum á átta árum hjá Liverpool, er það vandlega undirbúið af honum og umboðsmanni hans til að valda sem mestum skaða og styrkja eigin stöðu. Hann valdi þessa helgi til að gera þetta núna og ég held að hann hafi beðið eftir slæmum úrslitum hjá Liverpool. Eftir jöfnunarmarkið undir lokin voru allir hjá Liverpool í sárum og hann valdi þennan tíma til að vaða í stjórann og jafnvel að reyna að láta reka hann.“ Einn af þeim bestu í sögu félagsins Þrátt fyrir að vera vonsvikinn með framgöngu Salahs vonast Carragher til að hann spili áfram fyrir liðið. „Hvort hann spilar aftur fyrir Liverpool veit ég ekki. Ég vona það því hann er einn af bestu leikmönnum sem við höfum haft. En ef þú heldur svona áfram og kemur með svona yfirlýsingar ef þú spilar ekki, hver veit?“ sagði Carragher. Segist ekki hafa tekið Salah fyrir Eftir leikinn gegn Leeds minntist Salah á Carragher og sagði að hann hefði gagnrýnt hann ítrekað. Salah ásamt Hugo Ekitiké sem skoraði tvívegis gegn Leeds.getty/Tim Markland „Hef ég einhvern tímann gagnrýnt Mo Salah á vellinum? Ég hef aldrei gagnrýnt hann fyrir að hlaupa ekki til baka. Ég hef aldrei gagnrýnt hann þegar hann hefur ekki skorað í leikjum. Ég hef aldrei gagnrýnt hann þegar hann hefur ekki gefið á einhvern þegar hann átti að gera það. Því hann er algjör goðsögn hjá félaginu og fyrir það sem hann gerir þarftu að sætta þig við ýmislegt,“ sagði Carragher. „Mér finnst gagnrýnin á Salah á þessu tímabili hafa verið sumpart yfirdrifin. Ég hef sagt það opinberlega. En ef Salah reynir að henda félaginu mínu undir rútuna utan vallar og hugsar bara um sjálfan sig veð ég í hann.“ Liverpool mætir Inter á San Siro í Meistaradeildinni í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 20:00 og verður sýndur beint á Sýn Sport Viaplay.
Enski boltinn Tengdar fréttir Salah ekki með Liverpool til Ítalíu Mohamed Salah ferðast ekki með Liverpool yfir til Ítalíu og verður ekki í leikmannahópi liðsins gegn Inter Milan í Meistaradeildinni Evrópu annað kvöld. 8. desember 2025 16:04 Kom stjórnendum Liverpool á óvart hversu harðorður Salah var Leikmenn Liverpool bjuggust við því að Mohamed Salah myndi tjá sig um stöðu sína hjá félaginu eftir að hafa verið ónotaður varamaður gegn Leeds United um komandi helgi. Það kom stjórnendum Liverpool hins vegar á óvart hversu harðorður Salah var um samband sitt við þjálfarann Arne Slot. 8. desember 2025 13:31 Búist við að Salah verði hent úr hóp Búist er við því að Mohamed Salah ferðist ekki með Liverpool yfir til Ítalíu í dag og verði ekki í hóp á morgun er liðið mætir Inter Milan í Meistaradeildinni. 8. desember 2025 12:41 Salah-málið farið að minna mikið á þegar Ronaldo yfirgaf Man Utd Mohamed Salah hefur séð til þess að þessa tímabils verður líklega minnst frekar fyrir það sem hann gerði utan vallar en innan hans. 8. desember 2025 10:31 „Hann er með einhverjar Ibiza-myndir af Slot“ Það er óhætt að segja að Liverpool-miðvörðurinn Ibrahima Konaté hafi fengið að heyra það frá Messumönnum í gær þegar farið var yfir frammistöðu Frakkans á þessu vonbrigðartímabili fyrir Englandsmeistara Liverpool. 8. desember 2025 09:01 Beðið eftir blaðamannafundi Slot í dag: Er einhver leið til baka fyrir Salah? Þetta hlýtur að koma til greina sem eitt af sprengifimustu viðtölum ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi. Viðtal norska blaðamannsins við Mohamed Salah um helgina hefur búið til hálfgerða borgarastyrjöld innan herbúða Englandsmeistara Liverpool. 8. desember 2025 07:30 Sér bara eina leið fyrir Salah: „Komi og biðjist innilega afsökunar“ „Þetta var ótrúlegt viðtal,“ segir Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari í fótbolta, um risafréttir helgarinnar varðandi Mohamed Salah og stöðu hans hjá Liverpool. 7. desember 2025 21:40 Owen um Salah: „Skil hvernig þér líður“ Michael Owen, fyrrum framherji Liverpool, sem varð síðar óvinsæll hjá félaginu þegar hann samdi við Manchester United, hefur lagt orð í belg varðandi framgang Mohamed Salah eftir leik Liverpool við Leeds í gær. 7. desember 2025 15:35 Skýtur á Salah: „Lætur þetta allt snúast um sig“ Danny Murphy, fyrrum leikmaður Liverpool og sérfræðingur í Match of the Day á breska ríkisútvarpinu, BBC, gagnrýndi framkomu Mohamed Salah eftir leik liðsins við Leeds í gær. Salah rauf þögnina við fjölmiðla eftir þriðja leik hans á varamannabekk liðsins í röð þar sem hann útilokaði ekki brottför frá félaginu. 7. desember 2025 09:04 „Erfitt þegar þú færð á þig mörk án þess að fá á þig færi“ „Úff. Það er vantrúartilfinning,“ segir Arne Slot, þjálfari Liverpool, um líðan sína eftir 3-3 jafntefli við Leeds United í hreint ótrúlegum fótboltaleik á Elland Road í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. 6. desember 2025 21:32 Hádramatík í sex marka leik Leeds United og Liverpool skildu jöfn, 3-3, í stórskemmtilegum leik á Elland Road í ensku úrvalsdeildinni. Gestirnir glutruðu niður tveggja marka forystu og fengu á sig jöfnunarmark í blálokin. 6. desember 2025 19:30 Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Handbolti „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira
Salah ekki með Liverpool til Ítalíu Mohamed Salah ferðast ekki með Liverpool yfir til Ítalíu og verður ekki í leikmannahópi liðsins gegn Inter Milan í Meistaradeildinni Evrópu annað kvöld. 8. desember 2025 16:04
Kom stjórnendum Liverpool á óvart hversu harðorður Salah var Leikmenn Liverpool bjuggust við því að Mohamed Salah myndi tjá sig um stöðu sína hjá félaginu eftir að hafa verið ónotaður varamaður gegn Leeds United um komandi helgi. Það kom stjórnendum Liverpool hins vegar á óvart hversu harðorður Salah var um samband sitt við þjálfarann Arne Slot. 8. desember 2025 13:31
Búist við að Salah verði hent úr hóp Búist er við því að Mohamed Salah ferðist ekki með Liverpool yfir til Ítalíu í dag og verði ekki í hóp á morgun er liðið mætir Inter Milan í Meistaradeildinni. 8. desember 2025 12:41
Salah-málið farið að minna mikið á þegar Ronaldo yfirgaf Man Utd Mohamed Salah hefur séð til þess að þessa tímabils verður líklega minnst frekar fyrir það sem hann gerði utan vallar en innan hans. 8. desember 2025 10:31
„Hann er með einhverjar Ibiza-myndir af Slot“ Það er óhætt að segja að Liverpool-miðvörðurinn Ibrahima Konaté hafi fengið að heyra það frá Messumönnum í gær þegar farið var yfir frammistöðu Frakkans á þessu vonbrigðartímabili fyrir Englandsmeistara Liverpool. 8. desember 2025 09:01
Beðið eftir blaðamannafundi Slot í dag: Er einhver leið til baka fyrir Salah? Þetta hlýtur að koma til greina sem eitt af sprengifimustu viðtölum ensku úrvalsdeildarinnar frá upphafi. Viðtal norska blaðamannsins við Mohamed Salah um helgina hefur búið til hálfgerða borgarastyrjöld innan herbúða Englandsmeistara Liverpool. 8. desember 2025 07:30
Sér bara eina leið fyrir Salah: „Komi og biðjist innilega afsökunar“ „Þetta var ótrúlegt viðtal,“ segir Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari í fótbolta, um risafréttir helgarinnar varðandi Mohamed Salah og stöðu hans hjá Liverpool. 7. desember 2025 21:40
Owen um Salah: „Skil hvernig þér líður“ Michael Owen, fyrrum framherji Liverpool, sem varð síðar óvinsæll hjá félaginu þegar hann samdi við Manchester United, hefur lagt orð í belg varðandi framgang Mohamed Salah eftir leik Liverpool við Leeds í gær. 7. desember 2025 15:35
Skýtur á Salah: „Lætur þetta allt snúast um sig“ Danny Murphy, fyrrum leikmaður Liverpool og sérfræðingur í Match of the Day á breska ríkisútvarpinu, BBC, gagnrýndi framkomu Mohamed Salah eftir leik liðsins við Leeds í gær. Salah rauf þögnina við fjölmiðla eftir þriðja leik hans á varamannabekk liðsins í röð þar sem hann útilokaði ekki brottför frá félaginu. 7. desember 2025 09:04
„Erfitt þegar þú færð á þig mörk án þess að fá á þig færi“ „Úff. Það er vantrúartilfinning,“ segir Arne Slot, þjálfari Liverpool, um líðan sína eftir 3-3 jafntefli við Leeds United í hreint ótrúlegum fótboltaleik á Elland Road í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. 6. desember 2025 21:32
Hádramatík í sex marka leik Leeds United og Liverpool skildu jöfn, 3-3, í stórskemmtilegum leik á Elland Road í ensku úrvalsdeildinni. Gestirnir glutruðu niður tveggja marka forystu og fengu á sig jöfnunarmark í blálokin. 6. desember 2025 19:30