Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Sindri Sverrisson skrifar 12. desember 2025 17:57 Mohamed Salah snýr aftur í leikmannahóp Liverpool á morgun. getty/Lewis Storey Mohamed Salah verður í leikmannahópi Liverpool á morgun þegar liðið mætir Brighton, eftir fund með stjóranum Arne Slot í dag.
Liverpool tekur á móti Brighton á morgun klukkan 15, á Anfield, í síðasta leiknum áður en Salah heldur svo á Afríkumótið með egypska landsliðinu. View this post on Instagram A post shared by Fabrizio Romano (@fabriziorom) Salah var tekinn út úr leikmannahópi Liverpool fyrir sigurinn gegn Inter í Meistaradeild Evrópu í vikunni, eftir að hafa látið allt flakka í viðtali eftir 3-3 jafnteflið við Leeds um síðustu helgi. Salah hafði þá verið á varamannabekk Liverpool þrjá leiki í röð, og aðeins komið við sögu í einum þeirra. Hann sagði samband sitt við Slot brostið og að verið væri að gera hann að blóraböggli vegna slæms gengis Liverpool. Slot vildi lítið tjá sig um stöðu Salah á blaðamannafundi í dag en greindi þar frá því að þeir myndu funda í dag. „Við munum eiga fund núna á eftir. Útkoma þess fundar mun ákvarða hver næstu skref verða,“ sagði Slot í morgun og kvaðst vonast til þess að næst þegar hann þyrfti að svara spurningum um Salah yrði Egyptinn við hlið hans. The Athletic, Sky og fleiri miðlar greina frá því að Salah verði í leikmannahópi Liverpool á morgun og virðist sáttafundurinn í dag því hafa heppnast vel. Ljóst er þó að áfram verður rætt og ritað um framtíð Salah hjá Liverpool næstu vikurnar, nú þegar styttist í að félagaskiptaglugginn opnist í janúar.
Enski boltinn Mest lesið Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Enski boltinn Ísland - Sviss | Allt undir hjá ungu strákunum okkar Fótbolti Þjóðarhöllin á að rísa í janúar 2030 Sport City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Enski boltinn Arnar fái silkihanskameðferð: „Um hvað ertu að tala?“ Fótbolti Fleiri fréttir City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Sjá meira